Back to results

Bifröst University

Markaðssetning handverks og hönnunar með hjálp nýjustu net- og farsímatækni

Abstract

dc:description.abstract

Hugmynd að þessu lokaverkefni fæddist með þátttöku höfundar í samstarfsverkefni um Tourist Guide for Northern Periphery. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvort samfélög og fyrirtæki á norðurhjara geti nýtt sér snjallsímatæknina til markaðssetningar á handverki og hönnun. Þá er annars vegar verið að kanna áhrif net- og farsímatækninnar á markaðssetningu og sölu á handverki & hönnun og hins vegar hvaða áhrif þessi tækni geti haft á sýnileika handverks og hönnunar sem sköpuð eru í samfélögum og fyrirtækjum í hinum dreifðu byggðum norðurhjarans. Spurningakönnun var lögð fyrir tvo hópa. Annars vegar aðila sem starfa við handverk og hönnun og var notast við gagnagrunn stofnunar Handverks & Hönnunar. Framkvæmd þeirrar könnunar fór fram á tímabilinu mars-apríl 2013. Hins vegar var um að ræða könnun sem var lögð fyrir erlenda ferðamenn á Íslandi sumarið 2012. Notast var við lýsandi tölfræði á frumniðurstöðum og krosskeyrslur við greiningu niðurstaðna. Benda niðurstöður til þess að viðhorf bæði erlendra ferðamanna og aðila sem starfa við framleiðslu handverks og hönnunar sé almennt mjög jákvætt. Svör þeirra báru með sér að mikill meirihluti taldi að farsímalausn í snjallsíma myndi auka sýnileika á íslensku handverki og hönnun. Auk þess töldu flestir að þeir myndu nýta sér slíka farsímalausn til að kynna vörur sínar fyrir ferðamönnum. Eins sögðust ferðamenn geta notað tæknina til að kynna sér og leita uppi íslenskt handverk og hönnun. Markaðssetning á handverki og hönnun virðist vænleg fyrir þá ferðamenn sem eru opnir fyrir nýrri tækni og eiga snjallsíma og spjaldtölvur og þurfa söluaðilar því að laga sig að nýrri tækni við markaðssetningu og sölu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Margrét Rós Einarsdóttir 1975-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/16123
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/16123

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Margrét Rós Einarsdóttir 1975-. Markaðssetning handverks og hönnunar með hjálp nýjustu net- og farsímatækni. 2013. http://hdl.handle.net/1946/16123