Abstract
dc:description.abstractMarkmið ritgerðarinnar er að skýra hvað gjaldeyrishöft eru, hver áhrifin eru af gjaldeyrishöftunum á Íslandi og hvaða leiðir eru til að afnema þau. Í október 2008 upplifði Ísland mikla fjármálakreppu og hrundu þrír stærstu bankar þess í kjölfarið. Mikil áhætta skapaðist á stórfelldu útstreymi fjármagns þar sem tiltrú á íslenskum fjáreignum snarminnkaði í kjölfar hrunsins og gengi krónunnar lækkaði. Seðlabanki Íslands hefur gefið út tvær áætlanir sem snúa að því að skapa forsendur fyrir því að hægt sé að afnema höftin og er önnur þeirra enn í gildi. Þá verður skoðað hvað þarf raunverulega til svo hægt sé að aflétta höftunum, farið er lauslega yfir stöðu aflandskróna, gjaldeyrisforða, skuldir þjóðarbúsins, Seðlabankann og áhrif á gengi krónunnar. Síðast er farið yfir tillögur ýmsra aðila að því hvernig skuli losa gjaldeyrishöftin.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Brynhildur Diego Kolbeinsdóttir 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/14172
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/14172