Back to results

Bifröst University

Velferð í veikindum : réttindi vinnandi fólks í alþjóðlegu samhengi

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni rannsóknar þessarar eru sjúkratryggingar á Íslandi, þ.e.a.s. sá hluti sem snýr að einstaklingum með beinum greiðslum í veikindaorlofi. Eða m.ö.o. rannsókn á því hvaða fjármuni íslenskir launþegar fá í hendurnar til að tryggja afkomu sína verði þeir fyrir því að veikjast alvarlega. Niðurstöður eru bornar saman við fjögur önnur lönd, eitt úr hverjum flokki Esping-Andersenmiðað við flokkun hans á velferðarkerfum, og eitt sem dæmi um blandað kerfi. Löndin sem fyrir valinu urðu eru: Bretland (frjálslynda kerfið), Þýskaland (íhaldssama kerfið), Danmörk (félagslega kerfið) og Noregur (blandað kerfi). Markmiðin með rannsókninni eru að greina íslenska sjúkratryggingakerfið út frá þessum greiðslum, skoða hvernig verkaskiptingu íslenska velferðarkerfisins er háttað varðandi þær, skoða kerfið út frá greiningu Esping-Andersen á einkennum velferðarkerfa og að framkvæma samanburð á íslenska kerfinu og kerfum í samanburðarlöndunum fjórum. Skoðaðir voru kjarasamningar, reglugerðir og úthlutunarreglur sex stéttarfélaga og sjúkrasjóða og réttindi samkvæmt þeim borin saman. Þau félög sem fyrir valinu urðu eru: VR, SFR, Efling, Kennarasamband Íslands, Verslunarmannafélag Skagafjarðar (VS) og Eining-Iðja. SFR og VR lögðu síðan til raunupplýsingar til að hægt væri að kafa dýpra og skoða raunverulegar greiðslur. Einnig var gerð viðhorfskönnun meðal félagsmanna SFR og VR í þeim tilgangi að kanna þekkingu launþega á réttindum sínum í veikindum og meta hvort þessi réttindi skipti máli varðandi stéttarfélagsaðild. Helstu niðurstöður eru þær að sé íslenska sjúkradagpeningakerfið skoðað út frá flokkun Esping-Andersen á velferðarkerfum í íhaldssöm, frjálslynd og félagsleg kerfi, flokkast það sem blandað kerfi og fellur á milli félagslega klasans og þess íhaldssama. Ástæður eru þær helstar að kerfið er afar atvinnutengt, réttindi eru áunnin og fylgja stéttarfélagsaðild. Í ljósi þessa verður að telja að sá hluti íslenska velferðarkerfisins sem hér er til skoðunar, þ.e. sjúkradagpeningakerfið,sé ekki til þess fallinn að ýta undir af-vöruvæðingu íslenskra launþega. Félagsleg réttindi innan kerfisins eru hverfandi og lagskipting mikil.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Unnur Ágústsdóttir 1955-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14119
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14119

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Unnur Ágústsdóttir 1955-. Velferð í veikindum : réttindi vinnandi fólks í alþjóðlegu samhengi. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14119