Back to results

Bifröst University

Argentína og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn : kreppa og greiðslufall

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerð þessari verður samband Argentínu og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins rakið í aðdraganda efnahagshrunsins í landinu árið 2001. Varpað verður ljósi á hvað fór úrskeiðis og farið yfir helstu þætti þess sem steyptu Argentínu í svo háar skuldir að ríkið neyddist til þess að lýsa yfir greiðslufalli. Efnahagsvandi er ekki nýtt vandamál í Argentínu en það áfall sem skók landið árið 2001 er það vesta í sögu landsins til þessa. Á níunda áratug síðustu aldar var argentínskt efnahagslíf í molum og í landinu var óðaverðbolga. Sett voru róttæk lög, convertibily-lögin, til þess að koma efnahagslifinu aftur af stað og til skammst tíma tókst Argentínu undir handleiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að snúa hjólum efnahagslífsins. Hagvöxtur var mikill og unninn var bugur á verðbólgunni. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn stærði sig af árangri Argentínu, en hann hafði áhif á ákvarðanir stjórnvalda með svokölluðum SBA lánum. Vangeta stjórnvalda til þess að hafa hemil á ríkisútgjöldum leiddi þó að lokum til þess að skuldir landsins og vaxtakostnaður varð óyfirstíganlegt vandamál fyrir Argentínu og greiðslufall varð niðurstaðan. Utanaðkomandi þættir eins og kreppurnar í Mexíkó og Brasilíu höfðu einnig áhrif á gang mála. Ritgerðin byggir á heimildum sem fengnar eru úr greinum, bókum og skýrslum ásamt fréttum af netmiðlum. Leitast var við að nota heimildir frá fræðimönnum og viðurkenndum stofnunum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurður Rúnar Sigurðsson 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14101
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14101

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurður Rúnar Sigurðsson 1985-. Argentína og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn : kreppa og greiðslufall. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14101