Back to results

Bifröst University

Framkvæmd verðtryggingar á skuldbindingum almennra fjárfesta og neytenda

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um framkvæmd verðtryggingar á skuldbindingum almennra fjárfesta og neytenda. Almenn verðtrygging skuldbindinga hefur verið við lýði hér á landi allt frá árinu 1979 þegar henni var komið á með lögum nr. 13/1979 um stjórn efnahagsmála o.fl.. Á þeim árum sem liðin eru frá því verðtryggingu var komið á hafa ýmsar breytingar orðið á því lagaumhverfi sem um framkvæmd verðtryggingar gilda án þess að framkvæmd lánveitenda hafi tekið breytingum. Vaknaði áhugi höfundar á að kanna lögmæti þessarar framkvæmdar í kjölfar rannsókna á neytendarétti á fjármálamarkaði sem höfundur stundaði í grunnnámi sínu við Háskólann á Bifröst. Framkvæmd þessi byggir á reglum sem Seðlabanki Íslands setur með heimild í lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Megin viðfangsefni ritgerðarinnar var þó að kanna hvort sú framkvæmd að lánveitendur gefi út skuldabréf með tengingu við vísitölu neysluverðs til verðtryggingar gætu talist vera skuldabréf með innbyggða afleiðu og hvaða reglur giltu þá um slíkt, samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Jafnframt voru kannaðar reglur sem varða rétt neytenda á fjármálamarkaði, sérstaklega reglur laga nr. 121/1994 um neytendalán og reglur 36. gr. a- d. laga um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga nr. 7/1936 sem varða réttarstöðu neytenda sérstaklega. Megin áhersla var lögð á innlendar reglur en stoð sótt í dómaframkvæmd og túlkun stofnana Evrópusambandsins þar sem þörf var á en reglur laga um verðbréfaviðskipti og reglur þær er neytendaverndin byggir á eru leiddar af aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu. Niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að sú framkvæmd sem tíðkast hefur varðandi höfuðstólsfærslu verðbóta á sér ekki stoð í lögum um vexti og verðtryggingu og jafnframt að um sé að ræða skuldabréf með innbyggða afleiðu sem ekki er heimilt að bjóða almennum fjárfestum nema að undangengnu ströngu mati á hæfi þeirra til eiga viðskipti með slíkan gerning og tilhlýðanleika gerningsins gagnvart fjárfestinum. Jafnframt verður framkvæmd þessi talin brjóta í bága við réttindi neytenda í viðskiptum þeirra við lánveitendur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Arnar Kristinsson 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14083
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14083

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Arnar Kristinsson 1969-. Framkvæmd verðtryggingar á skuldbindingum almennra fjárfesta og neytenda. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14083