Back to results

Bifröst University

Útvistun opinberrar þjónustu, hverjir eru kostir og gallar? : skoðun tveggja raundæma í Borgarbyggð

Abstract

dc:description.abstract

Meginviðfangsefni þessarar ritgerðar er útvistun þjónustu og er horft út frá opinberri þjónustu. Kostir og gallar útvistunar opinberrar þjónustu eru rannsakaðir með raundæmiskoðun. Tvö þjónustuverkefni sveitarfélagsins Borgarbyggðar, sem hafa verið útvistuð, eru skoðuð. Rannsóknin er eigindleg raundæmisrannsókn og er megin gagnaöflun í formi opinna viðtala. Í fræðilega hlutanum er fjallað um útvistun almennt, helstu drifkrafta og kenningar sem helst hafa verið notaðar við rannsóknir á útvistun. Þá er lögð áhersla á útvistun hjá opinberum aðilum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til að með útvistun verði rekstur einfaldari og hægt er að lækka kostnað og bæta þjónustu en það fer eftir aðstæðum hverju sinni sem er í samræmi við fyrri rannsóknir. Helsti kosturinn við útvistun er einfaldari rekstur en helstu gallarnir eru minni yfirsýn og minni stjórn á verkefnum og þörf fyrir stífara eftirlit. Kostnaðaruppbygging breytist og hærra hlutfall kostnaðar verður breytilegur við útvistun. Í öðru raundæminu lækkaði kostnaður eftir útvistun og í hinu benti margt til þess að þjónusta hafi batnað og forsendur faglegs starfs hafi verið bættar í kjölfar minni starfsmannaveltu. Helstu gallarnir eru þörf á stífara eftirliti og minni stjórnunaráhrif sem er í samræmi við margar fyrri rannsóknir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Finnbjörn Börkur Ólafsson 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14082
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14082

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Finnbjörn Börkur Ólafsson 1974-. Útvistun opinberrar þjónustu, hverjir eru kostir og gallar? : skoðun tveggja raundæma í Borgarbyggð. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14082