Back to results

Bifröst University

Áhrif Evrópuréttar á löggjöf um lága eiginfjármögnun

Abstract

dc:description.abstract

Reglur Evrópuréttar hafa ótvírætt áhrif á löggjöf aðildarríkja þess um lága eiginfjármögnun. Nauðsynlegt er fyrir Alþingi Íslands að taka mið af þeim áhrifum við setningu slíkra reglna hér á landi. Aðild Íslands að EES-samningnum leiðir til þess að innlend löggjöf um skatta þarf að samræmast grunnreglum og tilgangi Evrópuréttar. Með EES-samningnum skuldbindur Ísland sig til að setja innlend lög í samræmi við fjórfrelsisákvæðin og stofnsetningarréttinn. Jafnframt þarf að taka tillit til dómsúrlausna Evrópudómstólsins sem sér um að túlka og standa vörð um að reglunum sé beitt eins innan aðildarríkjanna. Í samræmi við reglur Evrópuréttar sem banna mismunun þá er það grundvallaratriði að reglur um lága eiginfjármögnun mega ekki vera mismunandi eftir þjóðerni lánveitanda. Þær þurfa að miðast við að takmarka vaxtagjöld eingöngu vegna lána sem veitt eru á milli tengdra aðila. Löggjöf þarf því að vera skýr um hverjir teljist tengdir aðilar og þyrfti að setja nákvæma skilgreining á samstæðum í skattalög. Vaxtahugtakið þarfnast einnig endurskoðunar. Reglurnar þyrftu að miðast við málamyndagerninga en ættu ekki að vera almennar og ná með því einnig yfir lán sem veitt eru í rekstrar- og viðskiptalegum tilgangi. Í löggjöf þyrfti að vera ákvæði um að ef félög gætu sýnt fram á rekstrar- og viðskiptaleg sjónarmið að baki lántöku þá næðu reglurnar ekki til vaxtagjalda vegna þeirra lána

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ása Kristín Óskarsdóttir 1975-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12698
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12698

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ása Kristín Óskarsdóttir 1975-. Áhrif Evrópuréttar á löggjöf um lága eiginfjármögnun. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12698