Back to results

Bifröst University

Articule og Nýlistasafnið : stjórnun tveggja félagasamtaka á listasviðinu

Abstract

dc:description.abstract

Sú rannsókn sem hér fer á eftir er úttekt á stjórnun tveggja félagastofnana á listasviði. Markmiðið er að skoða stjórnarhætti listamannarekinna stofnana. Sett er fram sú tilgáta að listamannareknar stofnanir þurfi sífellt að huga að góðum stjórnarháttum sem leiða til og auka lýðræðislega stjórnskipan og gefi aukið vægi til félagsmanna með öflugu sjálfboðastarfi. Notuð var tilviksrannsókn (e. case study) og skoðaðar tvær stofnanir. Nýlistasafnið í Reykjavík og Articule listamannarekin stofnun í Montreal, Kanada. Höfundur vann með báðum stofnununum yfir tímabilið frá janúar 2008 til september 2010 í Articule og október 2010 til apríl 2011 með stjórn Nýlistasafnsins. Leitast er við að svara tveimur spurningum: Hvernig geta listamannareknar stofnanir nýtt sér reynslu Articule og Nýlistasafnsins hvað varðar stjórnarhætti? og hvernig geta góðir stjórnarhættir aukið vægi félagsmanna, lýðræðislega skipan mála og sjálfboðaliðastarf Helstu niðurstöður rannsóknarinnar styðja þá tilgátu sem sett er fram. Listamannareknar stofnanir þurfa sífellt að huga að góðum stjórnarháttum sem leiða til og auka lýðræðislega stjórnskipan, gefa meira vægi til félagsmanna og stuðla að öflugu sjálfboðastarfi. Listfélög geta hugsanlega nýtt sér reynslu Articule og Nýlistasafnsins hvað varðar stjórnarhætti, og tekið mið af leiðum þeim sem nefndar eru. Þær eru endurskoðun á hlutverkum stjórna, aðgreining ákvörðunarvalds og framkvæmdavalds, koma á fót virkum málefnanefndum, setja skýrar reglur um hlutverk og störf málefnanefnda og reglur um lámarkssjálfboðastarf félagsmanna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigrún Jenný Barðadóttir 1975-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12691
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12691

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigrún Jenný Barðadóttir 1975-. Articule og Nýlistasafnið : stjórnun tveggja félagasamtaka á listasviðinu. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12691