Back to results

Bifröst University

Skiptir menningin máli? : hverjar eru rætur og samfélagsleg áhrif uppbyggingar á sviði menningar og lista í fámennum samfélögum að mati samfélagsfrumkvöðla?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar er að kanna viðhorf frumkvöðla á þremur stöðum á landsbyggðinni til uppbyggingar atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista. Leitað er eftir ástæðum þess að uppbyggingin hófst og hvort og þá hvaða áhrif atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista hefur á samfélagið að þeirra mati, út frá eftirtöldum þáttum: Ímynd og sjálfsmynd; menntun og námsvali ungs fólks; starfsmöguleikum; fjölbreytni starfa og lífsgæðum. Rannsakandi valdi tilviksrannsókn sem rannsóknarsnið. Tekin eru viðtöl við átta einstaklinga sem komið hafa að uppbyggingu atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista á Hólmavík, Siglufirði og Seyðisfirði. Viðtölin eru þemagreind og eru níu þemu mest áberandi að greiningu lokinni. Mat viðmælenda er að uppbygging á sviði menningar og lista hafi jákvæð áhrif á samfélagið. Sjálfsmynd íbúa styrktist og ímynd samfélagsins breytist á jákvæðan hátt. Ný störf hafa orðið til í tengslum við uppbygginguna og líkur benda til að afleidd störf hafi skapast í ferðaþjónustu. Uppbyggingin hefur aukið á fjölbreytni í störfum og starfsmöguleikum á svæðunum. Hafa þessar breytingar jákvæð áhrif á gæði samfélagsins. Vísbendingar eru um að uppbyggingin hafi áhrif á námsval ungs fólks. Niðurstöður gefa margar áhugaverðar vísbendingar um áhrif atvinnuuppbyggingar á sviði menningar og lista sem athyglivert er að skoða nánar með frekari rannsóknum. Þær geta einnig haft hagnýtt gildi fyrir sveitarfélög sem líta til atvinnuuppbyggingar á sviði menningar og lista.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir 1966-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12687
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12687

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir 1966-. Skiptir menningin máli? : hverjar eru rætur og samfélagsleg áhrif uppbyggingar á sviði menningar og lista í fámennum samfélögum að mati samfélagsfrumkvöðla?. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12687