Back to results

Bifröst University

Skipulagt íþrótta- og tómstundastarf barna og unglinga : ávinningur hins opinbera á að gera öllum börnum kleift að stunda skipulagt íþrótta- og tómstundastarf

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð umfjöllunarefnið forvarnargildi skipulagðs íþrótta- og tómstundastarf fyrir ungmenni á Íslandi. Spurningin er hvort það er ávinningur fyrir hið opinbera að tryggja, að öll börn og unglingar á Íslandi geti stundað skipulagt íþrótta-og tómstundastarf óháð efnahagi foreldra eða forráðamanna. Rannsakandi telur að mikilvægi rannsóknarinnar muni aðalega felast í fræðilegum tilgangi. Það er að segja að sjá ávinning hins opinbera af að tryggja að grasrót samfélagsins fái jöfn tækifæri til þess að vaxa og dafna í þeim einstaklingi sem völ er á, óháð fjárráð eða áhuga foreldra eða forráðamanna þeirra á viðfangsefninu. Kannanir sýna fram á brottfall barna og unglinga úr skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi vegna útgjalda sem fylgir þátttöku. Þá hafa aðrar rannsóknir og kannanir sýnt fram á að einstaklingar sem fá að dafna í svona skipulögðu starfi eru líklegri til að verða heilsusamlegri einstaklingar á líkama og sál á eldri árum. Þar telur höfundur ávinning ríkisins vera hvað mestur þ.e. fjármunirnir sem sparast í heilbrigðiskerfinu og dómskerfinu auk þess að ala upp einstaklinga sem skila meiri framleiðni út í þjóðfélagið. Stór hluti ritgerðarinnar er í fræðilega kaflanum en þar er farið í áhrif íþrótta- og tómstunda á heilsu og líf barna og unglinga, og ástæður á auknum líkum á áhættuhegðun unglinga. Áhættuhegðun felur í sér hegðun sem getur lagt gerandann beint eða óbeint í hættu. Skilgreind áhættuhegðun í þessari rannsókn var áfengis-, tóbaks-, hass- eða marijúana neysla á meðal unglinga. Fyrri hluti rannsóknarinnar byggist á gögnum verkefnisins Heilsa og lífskjör skólanema 2009/2010 sem er íslenskur hluti alþjóðlegu rannsóknarinnar Health Behaviour in School-Aged Children (HBSC). Þátttakendur rannsóknarinnar voru samtals 3857 nemendur í 10. bekk úr grunnskólum víðsvegar um landið. Niðurstöður sýna að unglingar á landsbyggðinni verja oftar tíma sínum í skipulagðar íþróttir- og tómstundir og neyta sjaldnar áfengis, hass eða marijúana. Hins vegar neyta þeir tóbaks að jafnaði oftar en unglingar á höfuðborgarsvæðinu. Einnig komu í ljós jákvæð tengsl á milli tölvunotkunar og áhættuhegðunar og jafnframt á milli áhrifa frá jafningjum og áhættuhegðunar. Hins vegar komu fram neikvæð tengsl á milli skipulagðra íþrótta- og tómstunda og áhættuhegðunar. Síðari hluti rannsóknarinnar var að skoða útgjöld ríkissjóðs til íþrótta- og tómstundamála og áhrif þeirra á iðkunarfjölda landsmanna. Þar sýndu niðurstöður að þrátt fyrir lækkun útgjalda ríkissjóðs til íþrótta- og tómstundamála þá hækkaði hlutfall iðkana og iðkenda á sama tíma samkvæmt tölum frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Edda Björk Eggertsdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12661
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12661

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Edda Björk Eggertsdóttir 1976-. Skipulagt íþrótta- og tómstundastarf barna og unglinga : ávinningur hins opinbera á að gera öllum börnum kleift að stunda skipulagt íþrótta- og tómstundastarf. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12661