Back to results

Bifröst University

Erfiðleikar SAS

Abstract

dc:description.abstract

Flugfélagið SAS er eitt af rótgrónu flugfélögunum í heiminum. Það hefur verið við lýði fremur lengi og því upplifað þá þróun sem orðið hefur í fluggeiranum síðustu ár. Í ritgerðinni verður skoðað hvernig flugfélaginu hefur gengið í þeim öldusjó sem flugheimurinn er og ástæðna fyrir slæmu gengi leitað. Það verður gert t.d. með því að fara yfir sögu og stöðu SAS, sögu flugsins í Evrópu og helstu ákvarðanir stjórnenda fyrirtækisins. Aðferðafræðinni sem verður beitt er upplýsingaöflun þar sem safnað er saman gögnum úr ýmsum áttum, t.d. ársskýrslur, blaðagreinar, heimasíður flugfélaga sem og aðrar heimasíður o.fl. til þess að afla gagna og talna um viðkomandi efni. Einnig voru notaðar eigindlegar aðferðir við gagnaöflun eins og viðtöl úr blaðagreinum, til að fá sem nákvæmasta mynd af veruleikanum í flugheiminum. Ekki verður leitast við að kafa ofan í eitthvað eitt atriði, heldur reynt að skoða yfirborðið, heildina og söguna til þess að fá sem mesta yfirsýn yfir hvernig SAS hefur verið rekið síðustu ár, sem og hvernig það er rekið í dag. Ýmis hugtök tengd flugrekstri koma við sögu og eru þau skýrð út jafnóðum og þau koma fyrir. Þar má t.d. nefna hugtök eins og: Alþjóðasamtök Flugfélaga, Alþjóðaflugmálastofnun, Evrópusambandið, leiðarkerfi, afnám samkeppnishafta, heimahöfn, tekjustjórnun, lágfargjaldaflugfélag, full –þjónustu flugfélag, leiguflugfélag, bandalög flugfélaga, einkavæðing, ríkisfyrirtæki, markaðshlutdeild, stefnumótun, hagræðing, stéttarfélag, sjálfbær þróun, samfélagsábyrgð og fleiri hugtök í tengslum við efnið. Helstu niðurstöður eru þær að SAS hefur átt erfitt með að aðlaga rekstur sinn að breyttu umhverfi með opnun markaða og afnámi samkeppnishafta í Evrópu sem lauk 1993. Í framhaldinu var farið út í miklar fjárfestingar í stað þess að taka til í eigin rekstri. Ör forstjóraskipti og stefnuleysi hefur kostað flugfélagið mikla fjármuni, þrátt fyrir að reksturinn hafi verið einfaldaður á allra síðustu árum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Róbert Ágústsson 1975-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12660
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12660

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Róbert Ágústsson 1975-. Erfiðleikar SAS. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12660