Back to results

Bifröst University

Þurrkhús Nesfisks

Abstract

dc:description.abstract

Hausar og hryggir eru aukaafurðir af fiski sem farið er að nýta mun betur, þurrkun er ein helsta aðferðin sem notuð er til þess að verka þetta hráefni. Útflutningur ósaltaðra þurrkaðra fiskafurða hefur aukist mikið á undanförnum árum. Árið 2010 voru fluttar út ósaltaðar þurrkaðar fiskafurðir fyrir rúma 10 milljarða króna, miðað við tæpan milljarð árið 1999. Nígería er nánast eini markaðurinn sem kaupir þessar afurðir og því mjög mikilvægt að halda fast í þann markað og hjálpa honum að vaxa og dafna. Hausar eru afurð sem fyrirtæki hafa lært að nýta enda liggja mikil verðmæti í honum, frystitogarar eru farnir að hirða hausa í auknu mæli til þurrkunar, en áður fyrr var þessu öllu hent þar sem lítið var um pláss og lítið verðmæti fékkst fyrir hausana. Á árum áður var allt þurrkað utandyra en með nýrri tækni og þróun hefur mest öll þurrkun verið færð inn og eru um 25 fyrirtæki starfandi við þurrkun í dag. Mikil eftirspurn er eftir þurrkuðum fisk og vill markaðurinn meira. Niðurstöðurnar liggja í því að núverandi þurrkun hjá Nesfiski er orðin of lítil og ræður illa við þá toppa af hráefnum sem koma að grípa þarf til aðgerða, ekki er mögulegt að stækka á núverandi stað þar sem þurrkunin er staðsett í miðju bæjarfélagi þar sem lykt sem stafar af þurrkuninni er bæjarbúum til ama og er það krafa frá samfélaginu að lyktin hverfi á braut sem allra fyrst. Nesfiskur hefur því þrjá möguleika í stöðunni sem stendur, byggja nýja verkun á stað þar sem lykt er ekki vandamál, selja út til verktaka þurrkunina og pakka sjálfir í gámana og selja eða einfaldlega selja allt aukahráefni sem er þurrkað til annarra aðila í sömu grein.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hörður Sveinsson 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12654
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12654

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hörður Sveinsson 1983-. Þurrkhús Nesfisks. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12654