Bifröst University
Áhrif breyttrar aldurssamsetningar á skuldbindingar lífeyrissjóða á Íslandi
Abstract
dc:description.abstractLífeyriskerfi skipa mikilvægan sess í félagslegum öryggisnetum þjóða. Hlutverk þeirra er að veita veit öldruðum fjárhagslegt öryggi þegar að starfsæfi þeirra lýkur. Flest lífeyriskerfi byggja á hugmynd Alþjóðabankans að þriggja stoða lífeyris kerfi. Íslenska lífeyriskerfið er reist á þremur stoðum. Í fyrsta lagi opinbert gegnumstreymiskerfi almannatrygginga, í öðru lagi óopinbert sjóðsöfnunarkerfi með opinberu eftirliti og í þriðjalagi valfrjáls viðbótarlífeyrissparnaður. Fyrstu stoðirnar tvær hafa skylduaðild en meginstoðin er óopinbera sjóðssöfnunarkerfið. Flest lífeyriskerfi í heiminum standa nú frammi fyrir endurbótum sem stafar af breyttri aldurssamsetningu. Í þessari ritgerð eru áhrif breyttrar aldurssamsetningar á skuldbindingar lífeyrissjóða rannsökuð. Hér er gert grein fyrir þriggja stoða hugmynd alþjóða bankans og muninum á gegnumstreymi og sjóðssöfnun. Gert er grein fyrir eignum og skuldbindingum lífeyrissjóða og þróun mannfjölda rakin aftur í tíman ásamt framtíðarspá Hagstofunnar. Niðurstöður sýna fram á að hækkun lífslíkna um eitt ár veldur um 5% hækkun skuldbindinga lífeyrissjóða. Leiðrétting lífeyrissjóðakerfisins getur farið á þrennan hátt og þar af eru tvær takmarkaðar skammtímalausnir. Þriðja lausnin, hækkun ellilífeyrisaldurs, er ótakmörkuð langtímalausn. Til að koma til móts við breyttar forsendur þarf að hækka ellilífeyrisaldurinn um 3 ár. Þriðja leiðin, hækkun ellilífeyrisaldurs, er ákjósanlegasta lausnin til frambúðar. Hún tryggir stöðu lífeyrissjóðanna gagnvart breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristmundur Daníelsson 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/11491
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/11491