Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni þessa verkefnis er tvíþætt. Annars vegar er um að ræða að skoða hvaða áhrifavaldar í innra og ytra umhverfi fyrirtækja og stofnana kalla á breytingar og kenningar Kurts Lewins og Johns P. Kotters skoðaðar í framhaldinu. Hins vegar er um að ræða raundæmi um breytingaferil innan Reiknistofu bankanna (hér eftir RB) og undirbúningur og innleiðing þeirra breytinga mátaðar við kenningar fræðimannanna. Leitast er við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvernig samrýmist breytingaferill RB ef fylgt er kenningum Kurts Lewins og Johns P. Kotters? Farið er í gegnum „Þriggja þrepa módel“ Lewins og kenningu Kotters um „Átta skref til árangursríkra breytinga“. Undirbúningur og innleiðing skipulagsbreytinganna hjá RB eru svo skoðaðar í samhengi við þessar kenningar. Í kjölfar breytinga á eignarhaldi hefur RB lagt í mikla og metnaðarfulla vinnu við að innleiða breytingar á skipulagi fyrirtækisins. Sá ferill sem fylgt hefur verið hjá RB samrýmist vel kenningum Lewins og Kotters. Breytingaferillinn er enn í fullum gangi. Fyrsti hluti skipulagsbreytinganna hefur nýlega verið framkvæmdur og upplifun starfsmanna á þeim var könnuð með spurningakönnun. Niðurstöður þeirrar könnunar voru í samræmi við niðurstöður greininga sem voru framkvæmdar innan RB fyrir breytingarnar. Þar voru starfsmenn og viðskiptavinir að kalla eftir breytingum. Í spurningakönnuninni komu einnig fram niðurstöður sem vert er að taka til athugunar til að ná fram sem fyrst þeim hluta stefnu fyrirtækisins að starfsmenn upplifi það að þeir tilheyri einu og sama fyrirtækinu. Breytingaferill RB er um margt til fyrirmyndar og ekki ástæða til að ætla annað en að framtíðarmarkmið hennar, um að verða alhliða þjónustumiðstöð og fyrsti valkostur fyrirtækja á fjármálamarkaði til að nútímavæða og hagræða í tæknirekstri sínum, verði að veruleika innan fárra missera.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hjördís Ólöf Jóhannsdóttir 1967-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/10993
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/10993