Back to results

Bifröst University

Grikkland og evrusamstarfið : hvaða afleiðingar hefðu gjaldmiðlaskipti í Grikklandi á atvinnulíf og skuldastöðu þar í landi?

Abstract

dc:description.abstract

Á undaförnum mánuðum hefur efnahagsvandi Grikklands verið í umræðunni og var það kveikjan að þessari ritgerð. Leitast var við að svara spurningunni hvaða afleiðingar hefðu gjaldmiðlaskipti í Grikklandi á atvinnulíf og skuldastöðu þar í landi? Til þess að svara þessari spurningu voru ýmist notaðar ritaðar heimildir, þá bæði fræðirit og blaðagreinar, en einnig var notast við töluleg gögn frá OECD og Alþjóðabankanum. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru að atvinnuleysishorfur í Grikklandi munu fara batnandi þar sem nýr gjaldmiðill mun að öllum líkundum vera veikur á móti öðrum gjaldmiðlum, sem gæti blásið lífi í atvinnumál í Grikklandi. Ferðamannaiðnaður mun vaxa þar sem ferðamenn sækjast að jafnaði meira í ferðalög til landa með veikari gjaldmiðil. Útflutningsgreinar munu einnig eiga möguleika á að stækka þar sem landið verður samkeppnishæfara til útflutnings þegar framleiðsla verður ódýrari í landinu. Skuldavandi Grikklands mun fylgja þeim hvort sem þeir eru í Evrópusambandinu eður ei. Þá er það einnig ljóst að Grikkland mun ekki geta staðið undir sínum skuldum óbreyttum, lánardrottnar þurfa að taka á sig töluverðar afskriftir ef landið á að geta staðið undir skuldum. Með nýjum gjaldmiðli, sem mun að öllum líkindum falla í verði og vera ódýrari en evran, koma skuldir Grikklands til með að vaxa. Aftur á móti ef skuldir Grikklands væru færðar yfir í nýjan gjaldmiðil væri möguleiki fyrir Grikki að borga skuldir sínar til baka.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helgi Jóhann Björgvinsson 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10985
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10985

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helgi Jóhann Björgvinsson 1985-. Grikkland og evrusamstarfið : hvaða afleiðingar hefðu gjaldmiðlaskipti í Grikklandi á atvinnulíf og skuldastöðu þar í landi?. 2012. http://hdl.handle.net/1946/10985