Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessa verkefnis er að skoða hvort að munur er á samfélagslegri ábyrgð fyrirtækja í mismunandi heimshlutum og ef svo er, hvort að menning landa, trúarbrögð og efnahagur eigi hlut að máli. Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja í sjö heimshlutum var skoðuð frá CSR pýramída Carroll og í tengslum við eftirfarandi kenningar: klassísku kenningu CSR, kenninguna um sáttmála samfélagsins, hagsmunaaðilakenninguna, Corporate Citizenship og Corporate Social Performance. Viðmið og reglur samfélagslegrar ábyrgðar fyrirtækja á borð við viðmiðunarreglur OECD fyrir fjölþjóðleg fyrirtæki, hnattrænt samkomulag Sameinuðu þjóðanna og fleiri voru einnig skoðuð. CSR var skoðuð í eftirfarandi heimshlutum: Afríku, Asíu, Mið-Austurlöndum, Rómönsku Ameríku, Evrópu, Bandaríkjunum og Ástralíu. Tilvikarannsókn var beitt í þessari ritgerð og fyrirliggjandi heimildir voru notaðar, svo sem blaðagreinar, bækur og netheimildir. Niðurstaða rannsóknarinnar varð sú að áherslumunur er á skilgreiningu og framkvæmd samfélagslegrar ábyrgðar fyrirtækja á milli heimshluta og spila menning, trúarbrögð og efnahagur þar stór hlutverk. Mikinn mun er að sjá á milli þróunarríkja og þróaðra ríkja en einnig má sjá mun á samfélagslegri ábyrgð innan þessara hópa.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anna Jóna Baldursdóttir 1972-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/10178
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/10178