Back to results

Bifröst University

Er réttlætismál að skilja að ríki og þjóðkirkju á Íslandi?

Abstract

dc:description.abstract

Er réttlætismál að skilja að ríki og þjóðkirkju á Íslandi? Í ritgerðinni er reynt að svara spurningunni nú þegar umræðan stendur hvað hæst um samband ríkis og kirkju. Rekið er sögulegt samband ríkis og kirkju frá landnámi sem og heimspekileg umræða um aðskilnað ríkis og kirkju og hvernig hugmyndir um aðskilnað hafa þróast í gegnum aldirnar. Fjallað er um lagaleg tengls ríkis og kirkju og lýkur ritgerðinni á umræðukafla. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að rétt sé að skilja að ríki og kirkju á á lýðræðislegum og fjárhagslegum forsendum auk þess sem núverandi fyrirkomulag brýtur gegn 63. grein stjórnarskrárinnar. Kirkjan er ekki lýðræðisleg stofnun og er því rangt að ríkið skuli eiga í nánu sambandi við hana. Það er ekki á valdsviði ríkisins að hafa svo náin tengsl við trúfélag. Með sambandinu er þegnum mismunað eftir trúfélagsskráningu en þjóðkirkjan og meðlimir hennar njóta góðs af því í formi aukinna ríkisstyrkja, óformlegs valds hennar í stjórnkerfinu og samninga hennar við ríkisvaldið og laga sem um hana gilda. Þó að erfitt geti verið að skilja að ríki og kirkju vegna samninga ríkisins við kirkjuna væri það engu að síður réttlátt að fullur aðskilnaður ætti sér stað.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sindri Siggeirsson 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10176
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10176

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sindri Siggeirsson 1986-. Er réttlætismál að skilja að ríki og þjóðkirkju á Íslandi?. 2011. http://hdl.handle.net/1946/10176