Back to results

Agricultural University of Iceland

Aðgengi fatlaðra að níu náttúruverndarsvæðum

Abstract

dc:description.abstract

Markmið verkefnisins er að kanna aðgengi fatlaðra að níu náttúruverndarsvæðum á Íslandi. Valdir voru þjóðgarðarnir fjórir, Skaftafell, Snæfellsjökull, Jökulsárgljúfur og þjóðgarðurinn á Þingvöllum auk fimm annarra vinsælla ferðamannastaða, Gullfoss, Geysir, Dimmuborgir, Hraunfossar og Barnafoss. Gerður var listi til þess að meta skipulega aðstæður á hverjum stað. Listinn var gerður í samstarfi við fulltrúa Öryrkjabandalags Íslands og Sjálfsbjargar. Tekið var til breiddar á göngustígum, halla þeirra, yfirborðsefna, salernisaðstöðu og sérmerktra bílastæða fyrir fatlaða. Við úrvinnslu matsniðurstaðna var einnig tekið tillit til almennra reglna sem varða umhverfi fatlaðra s.s. um aðkomu að byggingum, rými og aðstöðu. Dregin eru fram það atriði laga og reglna sem varðað geta útivist og möguleika fatlaðra til hennar. Áætla má að um 14 % landsmanna hafi sérhæfða þörf frá þessu sjónarmiði (fatlaðir og aldraðir). Helstu niðurstöður athugunarinnar eru þessar: · Aðgengi reyndist vera misjafnt að svæðum og víða óviðunandi. · Mörg atriðin voru smáatriði sem koma má í veg fyrir með reglulegu eftirliti og fyrirhafnarlitlum úrbótum. · Lögð er fram tillaga að stjörnugjöf svæða með hliðsjón af aðgengi fatlaðra að náttúruverndarsvæðum landsins. · Rannsaka þarf mismunandi yfirborðsefni göngustíga með tilliti til umferðar og þarfa fatlaðra. skerpa þarf ákvæði um umhverfi og útivist í Skipulags- og byggingarlögum svo meira tillit sé tekið til þarfa fatlaðra. Fagleg umfjöllun byggingarnefnda sveitarfélaga og yfirvalda náttúruverndarsvæða verði í samráði við samtök fatlaðra eða fulltrúa þeirra (fatlaðan einstakling). Loks er hvatt til að áfram verði unnið að athugunum á þessu sviði í því skyni að bæta umhverfi og efla útivistarmöguleika sem flestra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórunn Edda Bjarnadóttir 1973-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7564
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7564

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórunn Edda Bjarnadóttir 1973-. Aðgengi fatlaðra að níu náttúruverndarsvæðum. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7564