Back to results

Agricultural University of Iceland

Hrossabeit í skógræktargirðingu

Abstract

dc:description.abstract

Uppsöfnun á sinu er víða talið vandamál í skógrækt, þar sem ungar trjáplötur eiga í harðri samkeppni við grasið. Beit hrossa hefur verið nefnd sem aðferð við að halda grasvexti niðri í skógræktargirðingum, en hættan hefur verið að hrossin bitu einnig trjáplönturnar. Skemmdir á trjáplöntum við að beita hrossum í skógræktargirðingu voru skoðaðar á Brimnesi í Skagafirði sumarið 2003. Hrossunum var beitt þrjú tímabil, í júní, júlí og ágúst og skemmdir á trjáplöntum skráðar. Hrossin skemmdu mest af tröllavíði og bitu hann öll tímabilin en létu aðrar víðitegundir að mestu vera. Lerki skemmdu þau nær eingöngu fyrsta tímabilið(júní). Stafafuru skemmdu hrossin mjög lítið og aðeins í júní og júlí. Grenið var alveg látið í friði öll tímabilin. Samkvæmt niðurstöðum þessarar fyrstu rannsóknarinnar virðist betra að beita hrossum í skógræktargirðingar seinnipart sumars (ágúst) ef að það er ekki tröllavíðir til staðar í girðingunni. Því að í ágúst bitu hrossin engar trjátegundir nema tröllavíði. Beit í skógræktargirðingum krefst þó mikils eftirlits og góðrar beitarstjórnunar en þörf er á frekari rannsóknum á þessu sviði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Steinunn Anna Halldórsdóttir 1978-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7555
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7555

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Steinunn Anna Halldórsdóttir 1978-. Hrossabeit í skógræktargirðingu. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7555