Back to results

Agricultural University of Iceland

Samanburður á kartöfluyrkjum og mismunandi staðsetningu flýtiáburðar

Abstract

dc:description.abstract

Kartöfluyrkjatilraunin var gerð í sandblendnum jarðvegi í Akurnesi í Hornafirði og í móajarðvegi á tilraunastöðinni á Korpu. Í henni fólst að bera saman erlendu kartöfluyrkin Belana, Inova, Piccolo star og Riviera út frá gæðum þeirra og uppskerumagni. Til viðmiðunar voru yrkin Gullauga og Premier sem eru þrautreynd við íslenskar ræktunaraðstæður. Auk þess voru bornir saman þrír mismunandi áburðarliðir í Akurnesi með tilliti til staðsetningar flýtiáburðarins OPTI - STARTTM (12% N, 23% P) og áburðarmagns. Tilraunin í Akurnesi var blokkatilraun með tveimur blokkum, 6 x 3 x 2 eða alls 36 reitir. Innan blokkanna tveggja voru sex smáblokkir sem notaðar voru til að fylgjast með og bregðast við breytileika í landinu. Kartöfluyrkjunum og áburðarliðunum var raðað handahófskennt innan smáblokkanna. Við tölfræðiuppgjör tilraunarinnar var notuð tvíþátta ferkvikagreining á línulegu módeli (General Linear Model) auk Pearson fylgnigreiningar. Markmið tilraunarinnar var að komast að því hvort mismunur væri á uppskeru að magni og gæðum eftir kartöfluyrkjum og áburðarliðum. Auk þess fól tilraunin í sér að kanna hvort eitthvað af erlendu kartöfluyrkjunum gæti hentað til áframhaldandi ræktunar á Íslandi. Helstu niðurstöðurnar voru þær að kartöfluyrkið Belana hentar til ræktunar við íslenskar aðstæður og þá sérstaklega með tilliti til vinnslu á forsoðnum kartöflum. Yrkin Piccolo star og Riviera lofa góðu en þarfnast frekari samanburðartilrauna. Staðsetning OPTI-STARTTM flýtiáburðarins í rás hjá kartöflunum gaf mesta uppskeruaukann að jafnaði fyrir alla uppskeruliði tilraunarinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sveinn Rúnar Ragnarsson 1987-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7246
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7246

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sveinn Rúnar Ragnarsson 1987-. Samanburður á kartöfluyrkjum og mismunandi staðsetningu flýtiáburðar. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7246