Back to results

Agricultural University of Iceland

Kynbótadómar íslenskra hrossa: tíðni athugasemda hæfileika við einkunnir og tengsl byggingar og hæfileika

Abstract

dc:description.abstract

Árið 2000 var tekið upp dómsblað sem innheldur athugasemdir fyrir hvern eiginleika. Þegar íslensk hross eru dæmd er merkt við þessar athugasemdir til rökstuðnings á dómnum og til að lýsa viðkomandi hrossi. Endurteknir dómar með athugasemdunum voru notaðir, alls 17.226 dómar frá árunum 2000-2008. Markmið verkefnisins var að nota tíðni athugasemdanna til að gefa vissa lýsingu af þeim hrossum sem mæta til dóms. Með því að reikna út meðaleinkunn athugasemdanna, fylgni athugasemdanna við einkunnir hæfileika og aðhvarfsgreiningu milli athugasemda hæfileika og einkunna hæfileika var fundið út hvaða athugasemdir einkenndu háar og lágar einkunnir hæfileika. Til að leggja mat á samband byggingar og hæfileika var reiknuð fylgni milli athugasemda byggingar og athugasemda hæfileika. Helstu niðurstöður eru þær að athugasemdir sem eru algengastar meðal sýndra hrossa eru taktgott tölt og fet; ferðlítið brokk og skeið; ferðmikið stökk; mikill fótaburður (fegurð í reið); reiðvilji og ásækni (vilji og geðslag). Þær athugasemdir sem einkenna háar einkunnir hæfileika eru þau atriði sem koma fram í lýsingum á einkunum 9,5-10 í stigurnarkvarða dómstiga íslenska hestsins. Þær athugasemdir sem einkenna lágar einkunnir eru atriði sem koma fyrir í lýsingum á lægri einkunum dómskalans. Samband milli athugasemda byggingar og athugasemda hæfileika er veik en það komu fram nokkrar athugasemdir byggingar sem gæta einhverja áhrifa á hæfileika en það eru halli bóga; lögun og lengd hálsins; halli og lögun baks; lögun bols; hæð fóta; þykkt hæla og dýpt hófa. Þessar athugasemdir höfðu einna mest áhrif á tölt, brokk, stökk og fegurð í reið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Úlfhildur Ída Helgadóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7242
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7242

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Úlfhildur Ída Helgadóttir 1985-. Kynbótadómar íslenskra hrossa: tíðni athugasemda hæfileika við einkunnir og tengsl byggingar og hæfileika. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7242