Agricultural University of Iceland
Lækningajurtagarður. Sögulegt ágrip og hönnunartillaga í Nesi á Seltjarnarnesi
Abstract
dc:description.abstractMarkmiðið með þessu verkefni var að gera hönnunartillögu að lækningajurtagarði í Nesi á Seltjarnarnesi. Til að ná því markmiði var í upphafi lögð fram greinargerð með tilvitnunum í heimildir varðandi lækningajurtagarða, tilvist þeirra, sögu og stöðu í nútímasamfélagi. Velt var upp merkingu orðsins garður, upphafi garðmenninar á Íslandi og þróun jurtagarðsins í íslensku samfélagi, með áherslu á efnisnotkun og umgjörð. Staðhættir í Nesi voru kannaðir, starfsemin, gróðurfar, veðurfar, örnefni,sagan, fornleifar, náttúruvernd, útivist og útsýni. Við staðháttagreininguna var andi staðarins einnig dreginn fram og SWOT-greiningu beitt. Í kjölfar greinargerðar og greiningarvinnu var hönnunartillaga að lækningajurtagarði sett fram, þar sem meginmarkmiðið var að gera fræðslu um lækningajurtir og notkun þeirra á Íslandi aðgengilega.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigríður Dúna Sverrisdóttir 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/7100
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/7100