Back to results

Agricultural University of Iceland

Þróun skipulags í Hveragerði

Abstract

dc:description.abstract

Verkefnið fjallar um þróun skipulags í Hveragerði. Markmiðið var að gera grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á bænum frá upphafi. Reynt var að varpa ljósi á það hvernig og hvers vegna byggðin þróaðist í þá átt sem hún gerði. Byrjað var á því að skoða byggðasögu bæjarins. Með því að skoða náttúrufarslegar forsendur sást hvort staðsetning bæjarins hafði áhrif á það hvernig hann mótaðist, þ.e. innra skipulag. Uppbygging þéttbýlisins var flokkuð og greind. Stuðst var við gamla uppdrætti og loftmyndir allt til dagsins í dag. Kenningar Conzens í borgarformfræði voru skoðaðar og leitast var við að heimfæra þær yfir á Hveragerði, en útbúin voru kort til greiningar. Niðurstöðurnar sýndu að skipulagið á svæðinu hefur að einhverju leyti ráðist af náttúrufarslegum aðstæðum. Í Hveragerði er fallegt landslag,fjölbreytt gróðurfar og margbrotin jarðfræði sem sett hefur svip sinn á bæinn en jarðhiti og sprungur í jörðu hafa takmarkað byggð á sumum svæðum. Staðsetning byggðarinnar mótaðist fyrst og fremst af jarðhitasvæðinu, Suðurlandsveginum og nálægð við Reykjavíkursvæðið. Elsti hluti byggðar er fyrir miðju bæjarins. Þar eru lóðir mjög stórar og djúpar en í yngri hluta byggðarinnar eru þær minni. Upphaflega mótaðist byggðin af garðyrkjunni og miðaðist fyrsta skipulagið við hana. Íbúðahúsahverfin byggðust sitthvoru megin við elsta hluta bæjarins. Fyrst og fremst voru þetta einnar hæðar einbýlishús og síðar parhús og raðhús. Þessi hverfi hafa enga sjáanlega sérstöðu umfram aðrar íbúðahúsabyggðir í öðrum bæjum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Berglind Sigurðardóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7095
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7095

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Berglind Sigurðardóttir 1981-. Þróun skipulags í Hveragerði. 2010. http://hdl.handle.net/1946/7095