Abstract
dc:description.abstractÞrátt fyrir marga kosti gróðurs og listar í borgarrýmum benda rannsóknir til þess að oft myndist misræmi á milli markmiða og/eða ákvæða í skipulagi og raunverulegrar lokaútkomu borgarrýma. Rannsóknir hafa greint frá ýmsum lykilatriðum og hindrunum sem hafa áhrif á innleiðingu markmiða um gróður og list úr skipulagi í lokaútkomu borgarrýma. Hins vegar hefur ekki verið rannsakað af hverju þetta misræmi verður til í íslensku skipulags- og framkvæmdaferli. Markmið verkefnisins er því að greina hvað valdi því að markmið og/eða ákvæði um gróður og list raungerast ekki að fullu í endanlegri útfærslu borgarrýma og á hvaða stigi skipulags- og framkvæmdaferlisins þetta misræmi verður til. Til þess að svara spurningunni var gerð eigindleg tilviksrannsókn þar sem Vogabyggð svæði 1 og 2 voru tekin fyrir. Framkvæmd var skjalagreining (e. document analysis) og voru niðurstöður hennar meðal annars settar fram með ferlakortlagningu (e. process mapping). Einnig voru tekin hálf-opin viðtöl við fjóra aðila sem komu að mismunandi stigum skipulags- og framkvæmdaferils Vogabyggðar og voru viðtölin síðar greind með þemagreiningu. Niðurstöður leiddu í ljós þó nokkur lykilatriði og hindranir á mismunandi stigum skipulags- og framkvæmdaferils Vogabyggðar. Vilji og metnaður hagsmunaaðila skiptir miklu máli á öllum stigum ferlisins, á stigi nánari hönnunar og útfærslu er mikilvægt að búið sé að taka frá rými í deiliskipulagi fyrir gróður og list en einnig skipta skýr og bindandi ákvæði í deiliskipulagi miklu máli þar sem þau auðvelda skipulagsyfirvöldum að tryggja að ákvæðin endurspeglist í nánari hönnun áður en hún er samþykkt. Þegar uppbygging hefst skiptir framkvæmdatími og plöntuval miklu máli en ekki má gleyma góðri umhirðu og viðhaldi í framhaldi hennar. Á lokastigi skipulags- og framkvæmdaferilsins kemur fram stærsta hindrunin en það er í raun gloppa í ferlinum sjálfum. Þegar uppbyggingu lýkur eru lokaúttektir framkvæmdar á vegum byggingafulltrúa sveitarfélags en þá eru iðulega einungis mannvirkin tekin út en ekki lóðirnar sjálfar. Það er því á þessu stigi þar sem hvað mesta misræmi á milli skipulags og lokaútkomu getur átt sér stað en það er í raun enginn sem fylgir því eftir að lóðirnar sjálfar séu samkvæmt skipulagi. Þetta bendir til tiltölulega auðveldrar lausnar, svo sem að fela sérhæfðu starfsfólki á umhverfis- og skipulagssviði að annast lokaúttektir á vegum skipulagsfulltrúa. Þá væri hægt að tryggja að samþykktir lóðauppdrættir og skipulagsskilmálar komi til framkvæmda í reynd.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sólrún Margrét Ólafsdóttir 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 12Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53712
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53712