Back to results

Agricultural University of Iceland

Umbreyting sjónarmiða íbúa í skipulagsferli grænna almenningsrýma Tilvikið Akureyrarvöllur

Abstract

dc:description.abstract

Í rannsókn þessari er skoðað hvernig gildi og sjónarmið íbúa birtast og umbreytast þegar þau færast frá samráðsferli yfir í formleg skipulagsgögn, þar sem Akureyrarvöllur á Akureyri er notaður sem tilvik. Beitt var eigindlegri skjalagreiningu á samráðsgögnum úr íbúaþinginu Akureyri í öndvegi (2004) og formlegum skipulagsgögnum sveitarfélagsins, með greiningarramma sem byggður er á þrívíðu líkani staðartengsla og kenningum um vald og þátttöku. Greining samráðsgagnanna leiddi í ljós fimm meginþemu sem endurspegla helstu gildi og sjónarmið íbúa: líf og starfsemi í miðbænum; tengingar og aðgengi; græn svæði og útivist; vernd bæjarmyndar; og ólík sjónarmið og hagsmuni. Samanburður við skipulagsgögnin sýndi að umbreyting þessara sjónarmiða er margþætt ferli þar sem ákveðin sjónarmið halda sér, önnur aðlagast og sum veikjast eða hverfa. Niðurstöður benda til tveggja samverkandi skýringa á umbreytingunni. Annars vegar mótar vald og fagleg síun innan skipulagskerfisins hvaða sjónarmið fá vægi í formlegri ákvarðanatöku. Hins vegar eiga staðartengsl íbúa, byggð á upplifun, minningum og daglegri notkun, erfitt með að halda sér þegar þau eru þýdd yfir í tæknilegt tungumál skipulags. Rannsóknin sýnir að lýðræðisleg þátttaka í skipulagi felur ekki sjálfkrafa í sér jafnt vægi allra sjónarmiða, heldur fer hún fram innan ramma þar sem vald og fagleg túlkun móta niðurstöðuna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrafnhildur A Jónsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53711
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53711

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrafnhildur A Jónsdóttir 1984-. Umbreyting sjónarmiða íbúa í skipulagsferli grænna almenningsrýma Tilvikið Akureyrarvöllur. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53711