Back to results

Agricultural University of Iceland

Hjólaleiðir í dreifbýli

Abstract

dc:description.abstract

Verkefnið fjallar um möguleika á hjólaleið milli Hellu og Hvolsvallar á Suðurlandi. Markmið þess er að skoða hvernig hjólaleið í dreifbýli getur nýst sem örugg samgöngutenging en jafnframt styrkt útivist, landslagsupplifun og tengsl við áhugaverða staði á svæðinu. Í verkefninu er fjallað um öryggi hjólandi vegfarenda á þjóðvegum, hönnunarviðmið fyrir hjólaleiðir, erlendar fyrirmyndir og staðbundnar forsendur rannsóknarsvæðisins. Bornir eru saman tveir leiðarkostir. Annars vegar er skoðuð bein leið meðfram þjóðvegi 1 og hins vegar leið sem sækir meira inn í landslagið og tengir saman staði á borð við Gunnarsholt, Keldur og Eystri-Rangá. Leiðarkostirnir eru metnir út frá öryggi, landslagi, tengingum, upplifun, læsileika og framkvæmanleika. Samanburðurinn sýnir að leið sem liggur að hluta utan þjóðvegar fellur betur að markmiðum verkefnisins, þar sem hún býður upp á meiri aðskilnað frá hraðri bílaumferð, fjölbreyttari upplifun og sterkari tengingu við landslag og staðareinkenni. Í hönnunartillögunni er valinn leiðarkostur þróaður áfram með áherslu á legu stígs, yfirborð, tengingar, áningarstaði og sérstakar útfærslur á lykilstöðum. Verkefnið sýnir hvernig hjólaleið í dreifbýli getur verið meira en einfalt samgöngumannvirki og jafnframt orðið hluti af útivist, ferðamennsku og landslagsupplifun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólöf Dagmar Guðmundsdóttir 1999-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53698
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53698

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ólöf Dagmar Guðmundsdóttir 1999-. Hjólaleiðir í dreifbýli. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53698