Agricultural University of Iceland
Minningar í mold og steini. Tækifæri og takmarkanir landslagshönnunar innan um menningarminjar og sögu
Abstract
dc:description.abstractLandslag geymir minningar, þar sem spor mannsins birtast í samspili við náttúruna. Efni, form og upplifun fléttast þar saman í lifandi heild sem mótar skilning okkar á staðnum. Sögusvið rannsóknar er útivistarsvæðið Sauðárgil við Sauðárkrók. Gilið hefur lengi haft sérstaka þýðingu fyrir höfund, staður tengdur upplifun, útivist og persónulegum minningum uppvaxtar. Á sama tíma hefur höfundur upplifað að sögulegar minjar svæðisins séu smám saman að hverfa eða falla inn í náttúruna. Sú upplifun var kveikjan að þessari rannsókn og efni ritgerðar. Í verkefninu er stuðst við fræðilegar rannsóknir sem fjalla um menningarlandslag, staðaranda, blágrænar innviðalausnir og tengsl manns og náttúru, þar sem líffræðilegur fjölbreytileiki kemur við sögu. Auk þess sem horft er til hugmynda um varðveislu og þróun innan sögulegra svæða. Sérstök áhersla er lögð á að skoða hvernig takmarkanir, svo sem friðun og náttúruvernd, getur orðið hvati að skapandi og staðbundinni landslagshönnun fremur en hindrun. Ritgerðin byggir á eigindlegri rannsóknaraðferð, þar sem beitt er vettvangs- og heimildagreining, ásamt skynrænni nálgun á umræddu svæði. Þar gegnir aðferðin Glæður mikilvægu hlutverki, sem aðferð til athugunar og skráningar á skynjun og upplifun svæðis og er leið til að fanga þá þætti sem erfitt er að greina með hefðbundnum aðferðum. Markmið verkefnisins er að setja fram hönnunarhugmyndir sem stuðla að varðveislu og endurnýjun menningarlandslags, þar sem saga, náttúra og upplifun myndar heild. En einnig að þróa hönnunarleiðarljós sem styður við hönnun í viðkvæmu landslagi. Niðurstöður benda til þess að með lágmarks inngripi og næmri nálgun er hægt að styrkja tengsl fólks við staðinn, gera sögu hans sýnilega og skapa upplifunarríkt landslag þar sem fortíð og nútíð mætast.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ingibjörg Huld Þórðardóttir 1975-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 10Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53687
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53687