{"id":{"repo_id":"ag-u-iceland","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/53678"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/ag-u-iceland/oai:skemman.is:1946/53678","repository":{"repo_id":"ag-u-iceland","name":"Agricultural University of Iceland","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Þróun sæðinga í íslenskri hrossarækt","abstract":"Íslensk hrossarækt hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum með aukinni notkun sæðinga og markvissara kynbótastarfi. Slík þróun getur haft áhrif á bæði erfðaframfarir og dreifingu erfðaframlags innan stofnsins. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á þróun sæðinga frá árunum 2015-2025 og greina þróun skyldleikaræktar og erfðaframfara í íslenska hrossastofninum á sama tímabili. Notuð voru tvö gagnasöfn úr WorldFeng sem innihéldu annars vegar upplýsingar um fyljunarskráningar og hins vegar samantekt á fæddum hrossum á tímabilinu 2015–2025. Unnið var með breyturnar skráðar fyljanir eftir sæðingar, skráð fædd folöld og stóðhestar í sæðingum. Fyrir hvern árgang skráðra folalda voru reiknuð meðaltöl fyrir kynbótamat (BLUP) og skyldleikaræktarstuðull (F). Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að notkun sæðinga hafði aukist verulega á árabilinu 2015–2025, þar af mest á seinni hluta tímabilsins. Fjöldi fyljana eftir sæðingar áttfaldaðist á sama tíma og fjöldi stóðhesta í sæðingum þrefaldaðist, fór úr 8 í 27 árið 2024. Það samsvaraði um 4% af heildarfjölda stóðhesta í ræktun. Fjöldi sæðinga náði hámarki árið 2024, þegar þær námu 13,42% allra fyljana. Í takti við aukna notkun sæðinga fengu fáir stóðhestar sífellt meira erfðafræðilegt vægi innan stofnsins. Um 1% stóðhesta, sem eignuðust 50 eða fleiri folöld á ári, voru feður 3,42% fæddra folalda í byrjun tímabilsins en hlutfall afkvæma þeirra var komið í 11,29% árið 2024. Þar á meðal voru 4 stóðhestar með yfir 100 folöld á ári, tveir þeirra þrjú og fjögur ár í röð. Neikvætt samband fannst milli fjölda sæðinga og fjölda skráðra folalda innan sama árs, á þeim árum sem mesta aukning varð í notkun sæðinga. Aukin notkun sæðinga var því ekki að stækka hrossastofninn heldur tengdist fremur áherslu ræktenda á gæði fram yfir magn í ræktuninni. Meðaltal skyldleikaræktarstuðuls hækkaði úr 2,75% árið 2015 í 3,06% árið 2024. Ekki fannst marktækt samband milli aukinnar notkunar sæðinga og hækkunar á skyldleikaræktarstuðli enda ekki líklegt að slík áhrif verði sýnileg fyrr en einhverjum kynslóðum síðar. Stöðugar erfðaframfarir mældust í íslenska hrossastofninum en meðal BLUP í árgöngum hækkaði úr um 96 í upphafi tímabilsins í um 106 í lok þess. Ekki var sýnt fram á marktækt samband á milli sæðinga og hækkunar á kynbótamati. Niðurstöðurnar benda til þess að aukin notkun sæðinga hafi átt sér stað á sama tíma og ræktun íslenska hestsins hefur varð markvissari og sérhæfðari, hraðaði þeirri þróun með vaxandi hættu á að hrossastofninn verði einsleitari og virk stofnstærð minnki. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að fylgjast með þróun erfðabreytileika og skyldleikaræktar í íslenska hrossastofninum. Þótt sæðingar geti stuðlað að hraðari erfðaframförum er mikilvægt að viðhalda jafnvægi milli aukinnar notkunar þeirra og varðveislu erfðafjölbreytileika til lengri tíma.","abstract_html":"Íslensk hrossarækt hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum með aukinni notkun sæðinga og markvissara kynbótastarfi. Slík þróun getur haft áhrif á bæði erfðaframfarir og dreifingu erfðaframlags innan stofnsins. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á þróun sæðinga frá árunum 2015-2025 og greina þróun skyldleikaræktar og erfðaframfara í íslenska hrossastofninum á sama tímabili. Notuð voru tvö gagnasöfn úr WorldFeng sem innihéldu annars vegar upplýsingar um fyljunarskráningar og hins vegar samantekt á fæddum hrossum á tímabilinu 2015–2025. Unnið var með breyturnar skráðar fyljanir eftir sæðingar, skráð fædd folöld og stóðhestar í sæðingum. Fyrir hvern árgang skráðra folalda voru reiknuð meðaltöl fyrir kynbótamat (BLUP) og skyldleikaræktarstuðull (F). Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að notkun sæðinga hafði aukist verulega á árabilinu 2015–2025, þar af mest á seinni hluta tímabilsins. Fjöldi fyljana eftir sæðingar áttfaldaðist á sama tíma og fjöldi stóðhesta í sæðingum þrefaldaðist, fór úr 8 í 27 árið 2024. Það samsvaraði um 4% af heildarfjölda stóðhesta í ræktun. Fjöldi sæðinga náði hámarki árið 2024, þegar þær námu 13,42% allra fyljana. Í takti við aukna notkun sæðinga fengu fáir stóðhestar sífellt meira erfðafræðilegt vægi innan stofnsins. Um 1% stóðhesta, sem eignuðust 50 eða fleiri folöld á ári, voru feður 3,42% fæddra folalda í byrjun tímabilsins en hlutfall afkvæma þeirra var komið í 11,29% árið 2024. Þar á meðal voru 4 stóðhestar með yfir 100 folöld á ári, tveir þeirra þrjú og fjögur ár í röð. Neikvætt samband fannst milli fjölda sæðinga og fjölda skráðra folalda innan sama árs, á þeim árum sem mesta aukning varð í notkun sæðinga. Aukin notkun sæðinga var því ekki að stækka hrossastofninn heldur tengdist fremur áherslu ræktenda á gæði fram yfir magn í ræktuninni. Meðaltal skyldleikaræktarstuðuls hækkaði úr 2,75% árið 2015 í 3,06% árið 2024. Ekki fannst marktækt samband milli aukinnar notkunar sæðinga og hækkunar á skyldleikaræktarstuðli enda ekki líklegt að slík áhrif verði sýnileg fyrr en einhverjum kynslóðum síðar. Stöðugar erfðaframfarir mældust í íslenska hrossastofninum en meðal BLUP í árgöngum hækkaði úr um 96 í upphafi tímabilsins í um 106 í lok þess. Ekki var sýnt fram á marktækt samband á milli sæðinga og hækkunar á kynbótamati. Niðurstöðurnar benda til þess að aukin notkun sæðinga hafi átt sér stað á sama tíma og ræktun íslenska hestsins hefur varð markvissari og sérhæfðari, hraðaði þeirri þróun með vaxandi hættu á að hrossastofninn verði einsleitari og virk stofnstærð minnki. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að fylgjast með þróun erfðabreytileika og skyldleikaræktar í íslenska hrossastofninum. Þótt sæðingar geti stuðlað að hraðari erfðaframförum er mikilvægt að viðhalda jafnvægi milli aukinnar notkunar þeirra og varðveislu erfðafjölbreytileika til lengri tíma.","abstract_has_math":false,"creators":["Saga Björk Jónsdóttir 1991-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Landbúnaðarháskóli Íslands"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2026,"date_issued":"2026-06-09T13:58:51Z","date_published":"2026-06-09T13:58:51Z","updated_at":"2026-07-27T18:40:49Z","subjects":["Hestafræði","Sæðingar","Fyljanir","Hrossarækt","Stóðhestar","Folöld","BLUP","Skyldleikaræktarstuðull"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"https://hdl.handle.net/1946/53678","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Landbúnaðarháskóli Íslands"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Saga Björk Jónsdóttir 1991-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2026-06-09T13:58:47Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2026-06-09T13:58:47Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2026-06-09T13:58:51Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Hestafræði","Sæðingar","Fyljanir","Hrossarækt","Stóðhestar","Folöld","BLUP","Skyldleikaræktarstuðull"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["https://hdl.handle.net/1946/53678"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Íslensk hrossarækt hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum með aukinni notkun sæðinga og markvissara kynbótastarfi. Slík þróun getur haft áhrif á bæði erfðaframfarir og dreifingu erfðaframlags innan stofnsins. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á þróun sæðinga frá árunum 2015-2025 og greina þróun skyldleikaræktar og erfðaframfara í íslenska hrossastofninum á sama tímabili. Notuð voru tvö gagnasöfn úr WorldFeng sem innihéldu annars vegar upplýsingar um fyljunarskráningar og hins vegar samantekt á fæddum hrossum á tímabilinu 2015–2025. Unnið var með breyturnar skráðar fyljanir eftir sæðingar, skráð fædd folöld og stóðhestar í sæðingum. Fyrir hvern árgang skráðra folalda voru reiknuð meðaltöl fyrir kynbótamat (BLUP) og skyldleikaræktarstuðull (F). Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að notkun sæðinga hafði aukist verulega á árabilinu 2015–2025, þar af mest á seinni hluta tímabilsins. Fjöldi fyljana eftir sæðingar áttfaldaðist á sama tíma og fjöldi stóðhesta í sæðingum þrefaldaðist, fór úr 8 í 27 árið 2024. Það samsvaraði um 4% af heildarfjölda stóðhesta í ræktun. Fjöldi sæðinga náði hámarki árið 2024, þegar þær námu 13,42% allra fyljana. Í takti við aukna notkun sæðinga fengu fáir stóðhestar sífellt meira erfðafræðilegt vægi innan stofnsins. Um 1% stóðhesta, sem eignuðust 50 eða fleiri folöld á ári, voru feður 3,42% fæddra folalda í byrjun tímabilsins en hlutfall afkvæma þeirra var komið í 11,29% árið 2024. Þar á meðal voru 4 stóðhestar með yfir 100 folöld á ári, tveir þeirra þrjú og fjögur ár í röð. Neikvætt samband fannst milli fjölda sæðinga og fjölda skráðra folalda innan sama árs, á þeim árum sem mesta aukning varð í notkun sæðinga. Aukin notkun sæðinga var því ekki að stækka hrossastofninn heldur tengdist fremur áherslu ræktenda á gæði fram yfir magn í ræktuninni. Meðaltal skyldleikaræktarstuðuls hækkaði úr 2,75% árið 2015 í 3,06% árið 2024. Ekki fannst marktækt samband milli aukinnar notkunar sæðinga og hækkunar á skyldleikaræktarstuðli enda ekki líklegt að slík áhrif verði sýnileg fyrr en einhverjum kynslóðum síðar. Stöðugar erfðaframfarir mældust í íslenska hrossastofninum en meðal BLUP í árgöngum hækkaði úr um 96 í upphafi tímabilsins í um 106 í lok þess. Ekki var sýnt fram á marktækt samband á milli sæðinga og hækkunar á kynbótamati. Niðurstöðurnar benda til þess að aukin notkun sæðinga hafi átt sér stað á sama tíma og ræktun íslenska hestsins hefur varð markvissari og sérhæfðari, hraðaði þeirri þróun með vaxandi hættu á að hrossastofninn verði einsleitari og virk stofnstærð minnki. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að fylgjast með þróun erfðabreytileika og skyldleikaræktar í íslenska hrossastofninum. Þótt sæðingar geti stuðlað að hraðari erfðaframförum er mikilvægt að viðhalda jafnvægi milli aukinnar notkunar þeirra og varðveislu erfðafjölbreytileika til lengri tíma."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Þróun sæðinga í íslenskri hrossarækt"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Landbúnaðarháskóli Íslands"],"dc:creator":["Saga Björk Jónsdóttir 1991-"],"dc:date.accessioned":["2026-06-09T13:58:47Z"],"dc:date.available":["2026-06-09T13:58:47Z"],"dc:date.issued":["2026-06-09T13:58:51Z"],"dc:description.abstract":["Íslensk hrossarækt hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum með aukinni notkun sæðinga og markvissara kynbótastarfi. Slík þróun getur haft áhrif á bæði erfðaframfarir og dreifingu erfðaframlags innan stofnsins. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á þróun sæðinga frá árunum 2015-2025 og greina þróun skyldleikaræktar og erfðaframfara í íslenska hrossastofninum á sama tímabili. Notuð voru tvö gagnasöfn úr WorldFeng sem innihéldu annars vegar upplýsingar um fyljunarskráningar og hins vegar samantekt á fæddum hrossum á tímabilinu 2015–2025. Unnið var með breyturnar skráðar fyljanir eftir sæðingar, skráð fædd folöld og stóðhestar í sæðingum. Fyrir hvern árgang skráðra folalda voru reiknuð meðaltöl fyrir kynbótamat (BLUP) og skyldleikaræktarstuðull (F). Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að notkun sæðinga hafði aukist verulega á árabilinu 2015–2025, þar af mest á seinni hluta tímabilsins. Fjöldi fyljana eftir sæðingar áttfaldaðist á sama tíma og fjöldi stóðhesta í sæðingum þrefaldaðist, fór úr 8 í 27 árið 2024. Það samsvaraði um 4% af heildarfjölda stóðhesta í ræktun. Fjöldi sæðinga náði hámarki árið 2024, þegar þær námu 13,42% allra fyljana. Í takti við aukna notkun sæðinga fengu fáir stóðhestar sífellt meira erfðafræðilegt vægi innan stofnsins. Um 1% stóðhesta, sem eignuðust 50 eða fleiri folöld á ári, voru feður 3,42% fæddra folalda í byrjun tímabilsins en hlutfall afkvæma þeirra var komið í 11,29% árið 2024. Þar á meðal voru 4 stóðhestar með yfir 100 folöld á ári, tveir þeirra þrjú og fjögur ár í röð. Neikvætt samband fannst milli fjölda sæðinga og fjölda skráðra folalda innan sama árs, á þeim árum sem mesta aukning varð í notkun sæðinga. Aukin notkun sæðinga var því ekki að stækka hrossastofninn heldur tengdist fremur áherslu ræktenda á gæði fram yfir magn í ræktuninni. Meðaltal skyldleikaræktarstuðuls hækkaði úr 2,75% árið 2015 í 3,06% árið 2024. Ekki fannst marktækt samband milli aukinnar notkunar sæðinga og hækkunar á skyldleikaræktarstuðli enda ekki líklegt að slík áhrif verði sýnileg fyrr en einhverjum kynslóðum síðar. Stöðugar erfðaframfarir mældust í íslenska hrossastofninum en meðal BLUP í árgöngum hækkaði úr um 96 í upphafi tímabilsins í um 106 í lok þess. Ekki var sýnt fram á marktækt samband á milli sæðinga og hækkunar á kynbótamati. Niðurstöðurnar benda til þess að aukin notkun sæðinga hafi átt sér stað á sama tíma og ræktun íslenska hestsins hefur varð markvissari og sérhæfðari, hraðaði þeirri þróun með vaxandi hættu á að hrossastofninn verði einsleitari og virk stofnstærð minnki. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að fylgjast með þróun erfðabreytileika og skyldleikaræktar í íslenska hrossastofninum. Þótt sæðingar geti stuðlað að hraðari erfðaframförum er mikilvægt að viðhalda jafnvægi milli aukinnar notkunar þeirra og varðveislu erfðafjölbreytileika til lengri tíma."],"dc:identifier.uri":["https://hdl.handle.net/1946/53678"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Hestafræði","Sæðingar","Fyljanir","Hrossarækt","Stóðhestar","Folöld","BLUP","Skyldleikaræktarstuðull"],"dc:title":["Þróun sæðinga í íslenskri hrossarækt"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T18:40:49Z"}