Agricultural University of Iceland
Áhrif útivistar á framleiðslu mjólkurkúa í mjaltaþjónafjósum
Abstract
dc:description.abstractÞróun í íslenskri mjólkurframleiðslu á undanförnum árum hefur verið sú að notkun mjaltaþjóna eykst ár frá ári, og eru lausagöngufjós með mjaltaþjóni nú orðin langalgengasta fjósgerð landsins. Samhliða þessari þróun hefur útivist mjólkurkúa dregist saman, sem virðist að hluta til tengjast notkun mjaltaþjóna. Í mjaltaþjónafjósum þurfa kýr að hafa stöðugt aðgengi að mjaltaþjóninum til að komast reglulega í mjaltir yfir daginn sem gerir skipulag útivistar flóknara. Því er mikilvægt að beitarskipulag sé vel útfært og aðgengi að beitarspildum gott. Þetta verkefni snýst um að kanna hvort útivist með beitarskipulagi hafi áhrif á nyt mjólkurkúa og efnainnihald mjólkur. Notuð voru gögn úr beitartilraun á Hvanneyri sem var framkvæmd á árunum 2022–2024 og tölur frá beitartímabilinu bornar saman við tölur utan beitartímabilsins. Niðurstöður sýna að mæting kúa í mjaltaþjón var marktækt lægri yfir beitartímabilið. Meðaldagsnyt var einnig lægri, en sá munur var ekki marktækur öll árin. Áhrif útivistar á efnainnihald og frumutölu mjólkur reyndust lítil; fituhlutfall og frumutala breyttist ekki marktækt milli tímabila, en próteinhlutfall var marktækt lægra yfir beitartímabilið, þó munurinn væri lítill. Í heild benda niðurstöðurnar til þess að útivist mjólkurkúa í mjaltaþjónafjósum geti haft neikvæð áhrif á mætingu og að einhverju leyti á nyt, en áhrif á efnainnihald og frumutölu eru takmörkuð. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi vandaðs beitarskipulags til að lágmarka neikvæð áhrif útivistar á framleiðsluþætti.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Atli Björn Atlason 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 11Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53666
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53666