Agricultural University of Iceland
Mótstaða gegn E. Coli sýkingum í ærbroddi. Rannsókn á mismunandi fyrirbyggjandi aðgerða á mótefna magn gegn E. Coli sýkingum í ærbroddi
Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknar var að skoða hvort munur væri á mótefna magni í ærbroddi miðað við mismunandi fyrirbyggjandi ráðstafanir við slefsýki. Þar sem fyrirbyggjandi sýklalyfjagjöf við slefsýki hefur verið bönnuð þurfa bændur að finna aðrar aðferðir við að fyrirbyggja sjúkdóminn. Broddmjólursýni voru tekin úr ám á 5 bæjum sem notast við mismunandi aðferðir til að fyrirbyggja slefsýki af völdum E.coli Sýni voru tekin á tveim bæjum í Borgarfirði þar sem annar bólusetti allar tvílembdar og þrílembdar ær gegn E.coli og hinn gaf Lambboost. Einum bæ í Dölum sem gaf “lambatöflur”. Einum bæ í Grýtubakkahrepp við Eyjafjörð og einum bæ í Hróarstungu, en þessir tveir bæir hafa ræktað markvist til að koma í veg fyrir slefsýki í nokkur ár. Sýnataka fór fram vorið 2023. Sýnin voru síðan geymd í frysti mun lengur en til stóð í upphafi vegna ófyrirsjáanlega vandamála sem upp komu. Vorið 2025 voru sýnin svo rannsökuð á rannsóknarstofu Matís í Reykjavík. Það bú sem bólusetti með Necolipor kom best út. Þ.e.a.s. meðaltal IgG var hæst ásamt því að hæsta og lægsta gildi fyrir búið var bæði hærri en hjá hinum bæjunum. Þar sem var markvist ræktað gegn slefsýki var ekki með jafn hátt magn af IgG og við var búist. Hinir bæirnir voru innan eðlilegra marka.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sesselja Dís Heiðarsdóttir 1999-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52182
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52182