Back to results

Agricultural University of Iceland

Sálfræðileg endurheimt í frístundahúsum: Áhrif umhverfis á vellíðan og heilsu

Abstract

dc:description.abstract

Í sífellt hraðari og streituvaldandi nútímasamfélagi leitar fólk í auknu mæli út fyrir daglegt umhverfi sitt til að ná jafnvægi og upplifa endurheimt. Markmið þessa verkefnis er að varpa ljósi á hvernig frístundahús geta stutt við sálfræðilega endurheimt og heilsu. Sérstök áhersla er lögð á kenninguna um endurheimta athygli (Attention Restoration Theory), þar sem fjórir meginþættir, fjarlægð, hrifning, umfang og samþýðanleiki, eru taldir lykilatriði í því hvernig umhverfi geti stutt við sálfræðilega endurheimt. Verkefnið samanstendur af fræðilegri samantekt ásamt könnun á upplifun notenda frístundahúsa í Skorradal. Framkvæmd var spurningakönnun meðal frístundahúsaeigenda og bárust alls 59 svör. Niðurstöður voru nýttar til að móta hönnunartillögu með áherslu á að skapa rými sem styðja við sálfræðilega endurheimt. Helstu niðurstöður benda til þess að frístundahús gegni mikilvægu hlutverki í lífi fólks sem vettvangur fyrir hvíld, ró og tengingu við náttúru. Ástæður þess að eiga frístundahús tengdust helst löngun til að komast burt frá daglegu amstri, upplifa kyrrð og tengjast náttúrulegu umhverfi. Þeir þættir í umhverfinu sem þátttakendur töldu styðja við endurheimt voru einkum, náttúra, kyrrð, vatn og tilfinningaleg tengsl. Meirihluti þátttakenda taldi mjög líklegt að dvöl í frístundahúsi þeirra stuðli að sálfræðilegri endurheimt. Á grundvelli niðurstaðna var mótuð hönnunartillaga fyrir svæði í Skorradal þar sem lögð var áhersla á að styrkja náttúrulega eiginleika og skapa rými fyrir ró, einrúm og tengingu við náttúru. Niðurstöður verkefnisins styðja við þá hugmynd að frístundahús í náttúrulegu umhverfi geti stuðlað að sálfræðilegri endurheimt, aukinni vellíðan og heilsueflingu í samfélaginu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Arna Jara Jökulsdóttir 2001-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50557
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50557

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Arna Jara Jökulsdóttir 2001-. Sálfræðileg endurheimt í frístundahúsum: Áhrif umhverfis á vellíðan og heilsu. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50557