Back to results

Agricultural University of Iceland

Aðstoð við myndun lífrænnar jarðvegsskánar við endurheimt vistkerfa á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Lífræn jarðvegsskán eða lífskurn (e. biocrust) er verið mikilvægur vistmeitill sem bætir virkni, stöðugleika og frjósemi jarðvegs og getur stuðlað að landnámi æðplantna. Hún getur því gengt mikilvægu hlutverki við baráttu gegn jarðvegseyðingu og endurheimt vistkerfa. Í þessari rannsókn var kannaður möguleiki á að styðja myndun lífskurnar með þremur meðferðum: smitun með ræktuðum blágrænubakteríum (Nostoc commune), muldu efni úr náttúrulegri lífskurn og tilbúnum áburði áburði (n=5), á jarðvegi af rofnu landi undir stýrðum aðstæðum í tilraunastofu í 6 mánuði. Allar meðferðir og ómeðhöndluð viðmið þróuðu sýnileg einkenni lífskurnar, svo sem mosa, slím (úr utanfrumu fjölsykrum) og svarta bletti (þyrpingar blágrænubaktería). Meðferð með mulinni skorpu og áburði gaf að meðaltali 1.2 sinnum meiri þekju lífskurnar (>100%) en viðmið og 2.1 sinnum meiri en meðferð með blágrænubakteríusmiti. Athyglisvert er að viðmiðin skiluðu betri árangri en blágrænubakteríusmitið, sem bendir til þess að smit hafi þegar verið til staðar í jarðveginum og að tilraunaumhverfið sjálft hafi stuðlað að myndun lífskurnarinnar. Frjósemi jarðvegs, mæld sem heildarinnihald kolefnis og niturs í efstu 1 cm jarðvegs, var 1.3 sinnum meiri í meðferð með muldu skorpuefni (hæst) miðað við áburðargjöf (lægst), sem gæti stafað af því að áburðurinn hindri niturbindingu blágrænubaktería. Niðurstöðurnar gefa til kynna að notkun á mulinni lífskurn geti verið efnileg leið til að hraða myndun lífskurnar á rofnu landi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Mette-Louise Klinge Linneberg 1997-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50495
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50495

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Mette-Louise Klinge Linneberg 1997-. Aðstoð við myndun lífrænnar jarðvegsskánar við endurheimt vistkerfa á Íslandi. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50495