Back to results

Agricultural University of Iceland

Vegetation on Icelandic Turf Houses and in Surrounding Habitats

Abstract

dc:description.abstract

Torfbæir eru tákn íslenskrar arfleifðar, byggðir að hluta úr torfi sem var meðal annars fengið úr efri lögum íslenskra mýra þar sem grös og starir voru ríkjandi. Torfbæir voru áður taldir merki fátæktar og í byrjun 20. aldar voru margir þeirra eyðilagðir. Þetta verkefni er hluti af verkefninu The Icelandic Turf House: A more-than-human story sem miðar að því að skoða torfbæinn ekki aðeins sem mannvirki heldur einnig sem vistkerfi. Í verkefninu er lögð áhersla á að skilgreina torfbæinn sem eitthvað meira en bara sögulegt mannvirki með því að bæta vistfræðilegri vídd við lýsingu þess. Markmið verkefnisins er að leggja til að torfbærinn sé sérstök vistgerð, byggð á vistgerðarflokkun Náttúrufræðistofnunar Íslands. Til þess að geta gert það er nauðsynlegt að rannsaka nokkra þætti torfbæjarins, svo sem gróður, sem var forsenda þessarar ritgerðar. Hér voru aðalmarkmiðin að meta mun á gróðurþekju milli torfbæja og nærliggjandi vistlenda og að bera saman gróður torfbæja á mismunandi svæðum. Fimm torfbæir voru teknir fyrir. Tveir 15 m2 reitir voru rannsakaðir á hverjum torfbæ og í nærliggjandi vistlendum og innan hvers reits voru fjórir 50 cm x 50 cm rammar settir út af handahófi til gróðurgreiningar. Við úrvinnslu gagna voru reitir bornir sjónrænt saman með ólínulegri fjölbreytugreiningu auk þess sem gróður mismunandi vistlenda var borinn saman með tölfræðilíkönum. Niðurstöður leiddu í ljós verulegan mun á tegundasamsetningu torfbæja og votlendis annars vegar og kjarrlendis hins vegar, en henni svipaði hins vegar talsvert til graslendis. Munurinn var hvað mestur við samanburð torfbæja og votlendis, þrátt fyrir að torfið væri upprunnið úr votlendi. Nokkur breytileiki milli torfbæjanna bendir til þess að gróður þeirra verði fyrir áhrifum utanaðkomandi þátta svo sem mannlegra, veðurfræðilegra og vistfræðilegra þátta. Lykilorð: Gróður, gróðurþekja, torfbær, umhverfisþættir, veðurfarsáhrif, vistgerð, vistlendi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Evlalía Kolbrún Ágústsdóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50486
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50486

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Evlalía Kolbrún Ágústsdóttir 1998-. Vegetation on Icelandic Turf Houses and in Surrounding Habitats. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50486