{"id":{"repo_id":"ag-u-iceland","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/47560"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/ag-u-iceland/oai:skemman.is:1946/47560","repository":{"repo_id":"ag-u-iceland","name":"Agricultural University of Iceland","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"Kúabelgir Uppskera og fóðurgildi einærra belgjurta fyrir mjólkurkýr","abstract":"Belgjurtir eru ræktaðar út um allan heim. Á Íslandi hafa aðallega verið ræktaðar fjölærar tegundir, svo sem rauð- og hvítsmári. Gerðar hafa verið nokkrar tilraunir með einærar fóðurbelgjurtir í gegnum árin en niðurstöður þeirra hafa ekki leitt til almennrar notkunar. Með aukinni áherslu á loftslagsmálum og verðhækkun á nituráburði er áhugi fyrir belgjurtum að aukast. Einn af stórum kostum þess að rækta belgjurtir er samlíf þeirra við Rhizobium bakteríur, en geta þær myndað rótarhnýði á rótum belgjurta og bundið nitur (N2) úr andrúmsloftinu í ammoníum (NH4+). Geta plantan og nærliggjandi plöntur nýtt sér það í stað tilbúins N áburðar. Sumurin 2022 og 2023 voru gerðar þrjár tilraunir hvort ár með einærar fóðurbelgjurtir. Árið 2022 á Mið-Fossum, þar var gerð ein tegunda- og yrkjatilraun með 6 tegundum og 11 yrkjum, 1 heilsæðistilraun með 3 heilsæðisgerðum og 3 sláttutímum og 1 sáðmagns-, N- áburðaskammta- og yrkjatilraun. Var mikið um skakkaföll, meðal annars vegna lágs sýrustigs í jarðveginum og kálflugu og var því ákveðið að endurtaka tilraunirnar á Ásgarðshólnum á Hvanneyri sumarið 2023. Var skipulagi breytt á milli ára. Tilraunirnar það árið voru ein tegunda- og yrkjatilraun með 3 tegundum og 7 yrkjum, 6 sem voru einnig árið áður. Heilsæðistilraun með 3 heilsæðisblöndum og 1 byggheilsæði í hreinrækt til samanburðar, var 1 heilsæðisblandan með tveimur mismunandi áburðarskömmtum og þar með 5 heilsæðisgerðir í heildina í einum sláttutíma. Einnig var sáðmagns- og N-áburðarskammtatilraunin endurtekin en eingöngu með 1 yrki, Ingrid, og voru áburðarskammtarnir stækkaðir lítillega á milli ára. Fundust engin rótarhnýði á plöntum á Mið-Fossum árið 2022 sem kom niður á heildaruppskeru og próteininnihaldi kúabelgjanna. En það fundust rótarhnýði í tilraunum árið 2023 og var bæði heildaruppskera og próteininnihald meira það ár. Erturnar voru með marktækt mesta uppskeru, bæði árin. Næringarskortur hrjáði bæði repju og ertur í heilsæði þannig að niðurstöður úr þeim tilraunum voru ekki eins og við var að búast. Gaf mesti sáðskammturinn mesta uppskeru í sáðmagnstilrauninni og árið 2022 gaf mesti N-áburðarskammturinn mesta uppskeru, þar sem niturbindingar Rhizobium naut ekki við, en árið 2023 þar sem niturbinding var til staðar var ekki marktækur munur á milli áburðarskammta. Orðið kúabelgir er nýyrði sem var sérstaklega fundið upp til að vekja athygli á þessu verkefni. Kúabelgir er hér notað sem samheiti yfir einærar fóðurbelgjurtir fyrir kýr. Lykilorð: Einærar fóðurbelgjurtir, ertur, hestabaunir, fóðurlúpína, logasmári, fóðurflækja, loðflækja, heilsæði, sáðmagn, N-áburðarskammtar.","abstract_html":"Belgjurtir eru ræktaðar út um allan heim. Á Íslandi hafa aðallega verið ræktaðar fjölærar tegundir, svo sem rauð- og hvítsmári. Gerðar hafa verið nokkrar tilraunir með einærar fóðurbelgjurtir í gegnum árin en niðurstöður þeirra hafa ekki leitt til almennrar notkunar. Með aukinni áherslu á loftslagsmálum og verðhækkun á nituráburði er áhugi fyrir belgjurtum að aukast. Einn af stórum kostum þess að rækta belgjurtir er samlíf þeirra við Rhizobium bakteríur, en geta þær myndað rótarhnýði á rótum belgjurta og bundið nitur (N2) úr andrúmsloftinu í ammoníum (NH4+). Geta plantan og nærliggjandi plöntur nýtt sér það í stað tilbúins N áburðar. Sumurin 2022 og 2023 voru gerðar þrjár tilraunir hvort ár með einærar fóðurbelgjurtir. Árið 2022 á Mið-Fossum, þar var gerð ein tegunda- og yrkjatilraun með 6 tegundum og 11 yrkjum, 1 heilsæðistilraun með 3 heilsæðisgerðum og 3 sláttutímum og 1 sáðmagns-, N- áburðaskammta- og yrkjatilraun. Var mikið um skakkaföll, meðal annars vegna lágs sýrustigs í jarðveginum og kálflugu og var því ákveðið að endurtaka tilraunirnar á Ásgarðshólnum á Hvanneyri sumarið 2023. Var skipulagi breytt á milli ára. Tilraunirnar það árið voru ein tegunda- og yrkjatilraun með 3 tegundum og 7 yrkjum, 6 sem voru einnig árið áður. Heilsæðistilraun með 3 heilsæðisblöndum og 1 byggheilsæði í hreinrækt til samanburðar, var 1 heilsæðisblandan með tveimur mismunandi áburðarskömmtum og þar með 5 heilsæðisgerðir í heildina í einum sláttutíma. Einnig var sáðmagns- og N-áburðarskammtatilraunin endurtekin en eingöngu með 1 yrki, Ingrid, og voru áburðarskammtarnir stækkaðir lítillega á milli ára. Fundust engin rótarhnýði á plöntum á Mið-Fossum árið 2022 sem kom niður á heildaruppskeru og próteininnihaldi kúabelgjanna. En það fundust rótarhnýði í tilraunum árið 2023 og var bæði heildaruppskera og próteininnihald meira það ár. Erturnar voru með marktækt mesta uppskeru, bæði árin. Næringarskortur hrjáði bæði repju og ertur í heilsæði þannig að niðurstöður úr þeim tilraunum voru ekki eins og við var að búast. Gaf mesti sáðskammturinn mesta uppskeru í sáðmagnstilrauninni og árið 2022 gaf mesti N-áburðarskammturinn mesta uppskeru, þar sem niturbindingar Rhizobium naut ekki við, en árið 2023 þar sem niturbinding var til staðar var ekki marktækur munur á milli áburðarskammta. Orðið kúabelgir er nýyrði sem var sérstaklega fundið upp til að vekja athygli á þessu verkefni. Kúabelgir er hér notað sem samheiti yfir einærar fóðurbelgjurtir fyrir kýr. Lykilorð: Einærar fóðurbelgjurtir, ertur, hestabaunir, fóðurlúpína, logasmári, fóðurflækja, loðflækja, heilsæði, sáðmagn, N-áburðarskammtar.","abstract_has_math":false,"creators":["Helga Rún Jóhannsdóttir 1996-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Landbúnaðarháskóli Íslands"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2024,"date_issued":"2024-06-06T12:45:26Z","date_published":"2024-06-06T12:45:26Z","updated_at":"2026-07-27T18:42:25Z","subjects":["Búvísindi","Einærar fóðurbelgjurtir","Ertur","Hestabaunir","Fóðurlúpína","Logasmári","Fóðurflækja","Loðflækja","Heilsæði","Sáðmagn","N-áburðarskammtar"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/47560","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Landbúnaðarháskóli Íslands"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Helga Rún Jóhannsdóttir 1996-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2024-06-06T12:45:25Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2024-06-06T12:45:25Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2024-06-06T12:45:26Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Búvísindi","Einærar fóðurbelgjurtir","Ertur","Hestabaunir","Fóðurlúpína","Logasmári","Fóðurflækja","Loðflækja","Heilsæði","Sáðmagn","N-áburðarskammtar"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/47560"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Belgjurtir eru ræktaðar út um allan heim. Á Íslandi hafa aðallega verið ræktaðar fjölærar tegundir, svo sem rauð- og hvítsmári. Gerðar hafa verið nokkrar tilraunir með einærar fóðurbelgjurtir í gegnum árin en niðurstöður þeirra hafa ekki leitt til almennrar notkunar. Með aukinni áherslu á loftslagsmálum og verðhækkun á nituráburði er áhugi fyrir belgjurtum að aukast. Einn af stórum kostum þess að rækta belgjurtir er samlíf þeirra við Rhizobium bakteríur, en geta þær myndað rótarhnýði á rótum belgjurta og bundið nitur (N2) úr andrúmsloftinu í ammoníum (NH4+). Geta plantan og nærliggjandi plöntur nýtt sér það í stað tilbúins N áburðar. Sumurin 2022 og 2023 voru gerðar þrjár tilraunir hvort ár með einærar fóðurbelgjurtir. Árið 2022 á Mið-Fossum, þar var gerð ein tegunda- og yrkjatilraun með 6 tegundum og 11 yrkjum, 1 heilsæðistilraun með 3 heilsæðisgerðum og 3 sláttutímum og 1 sáðmagns-, N- áburðaskammta- og yrkjatilraun. Var mikið um skakkaföll, meðal annars vegna lágs sýrustigs í jarðveginum og kálflugu og var því ákveðið að endurtaka tilraunirnar á Ásgarðshólnum á Hvanneyri sumarið 2023. Var skipulagi breytt á milli ára. Tilraunirnar það árið voru ein tegunda- og yrkjatilraun með 3 tegundum og 7 yrkjum, 6 sem voru einnig árið áður. Heilsæðistilraun með 3 heilsæðisblöndum og 1 byggheilsæði í hreinrækt til samanburðar, var 1 heilsæðisblandan með tveimur mismunandi áburðarskömmtum og þar með 5 heilsæðisgerðir í heildina í einum sláttutíma. Einnig var sáðmagns- og N-áburðarskammtatilraunin endurtekin en eingöngu með 1 yrki, Ingrid, og voru áburðarskammtarnir stækkaðir lítillega á milli ára. Fundust engin rótarhnýði á plöntum á Mið-Fossum árið 2022 sem kom niður á heildaruppskeru og próteininnihaldi kúabelgjanna. En það fundust rótarhnýði í tilraunum árið 2023 og var bæði heildaruppskera og próteininnihald meira það ár. Erturnar voru með marktækt mesta uppskeru, bæði árin. Næringarskortur hrjáði bæði repju og ertur í heilsæði þannig að niðurstöður úr þeim tilraunum voru ekki eins og við var að búast. Gaf mesti sáðskammturinn mesta uppskeru í sáðmagnstilrauninni og árið 2022 gaf mesti N-áburðarskammturinn mesta uppskeru, þar sem niturbindingar Rhizobium naut ekki við, en árið 2023 þar sem niturbinding var til staðar var ekki marktækur munur á milli áburðarskammta. Orðið kúabelgir er nýyrði sem var sérstaklega fundið upp til að vekja athygli á þessu verkefni. Kúabelgir er hér notað sem samheiti yfir einærar fóðurbelgjurtir fyrir kýr. Lykilorð: Einærar fóðurbelgjurtir, ertur, hestabaunir, fóðurlúpína, logasmári, fóðurflækja, loðflækja, heilsæði, sáðmagn, N-áburðarskammtar."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["Kúabelgir Uppskera og fóðurgildi einærra belgjurta fyrir mjólkurkýr","Cow-legumes; yield and nutritional value in annual legumes for dairy cows"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Landbúnaðarháskóli Íslands"],"dc:creator":["Helga Rún Jóhannsdóttir 1996-"],"dc:date.accessioned":["2024-06-06T12:45:25Z"],"dc:date.available":["2024-06-06T12:45:25Z"],"dc:date.issued":["2024-06-06T12:45:26Z"],"dc:description.abstract":["Belgjurtir eru ræktaðar út um allan heim. Á Íslandi hafa aðallega verið ræktaðar fjölærar tegundir, svo sem rauð- og hvítsmári. Gerðar hafa verið nokkrar tilraunir með einærar fóðurbelgjurtir í gegnum árin en niðurstöður þeirra hafa ekki leitt til almennrar notkunar. Með aukinni áherslu á loftslagsmálum og verðhækkun á nituráburði er áhugi fyrir belgjurtum að aukast. Einn af stórum kostum þess að rækta belgjurtir er samlíf þeirra við Rhizobium bakteríur, en geta þær myndað rótarhnýði á rótum belgjurta og bundið nitur (N2) úr andrúmsloftinu í ammoníum (NH4+). Geta plantan og nærliggjandi plöntur nýtt sér það í stað tilbúins N áburðar. Sumurin 2022 og 2023 voru gerðar þrjár tilraunir hvort ár með einærar fóðurbelgjurtir. Árið 2022 á Mið-Fossum, þar var gerð ein tegunda- og yrkjatilraun með 6 tegundum og 11 yrkjum, 1 heilsæðistilraun með 3 heilsæðisgerðum og 3 sláttutímum og 1 sáðmagns-, N- áburðaskammta- og yrkjatilraun. Var mikið um skakkaföll, meðal annars vegna lágs sýrustigs í jarðveginum og kálflugu og var því ákveðið að endurtaka tilraunirnar á Ásgarðshólnum á Hvanneyri sumarið 2023. Var skipulagi breytt á milli ára. Tilraunirnar það árið voru ein tegunda- og yrkjatilraun með 3 tegundum og 7 yrkjum, 6 sem voru einnig árið áður. Heilsæðistilraun með 3 heilsæðisblöndum og 1 byggheilsæði í hreinrækt til samanburðar, var 1 heilsæðisblandan með tveimur mismunandi áburðarskömmtum og þar með 5 heilsæðisgerðir í heildina í einum sláttutíma. Einnig var sáðmagns- og N-áburðarskammtatilraunin endurtekin en eingöngu með 1 yrki, Ingrid, og voru áburðarskammtarnir stækkaðir lítillega á milli ára. Fundust engin rótarhnýði á plöntum á Mið-Fossum árið 2022 sem kom niður á heildaruppskeru og próteininnihaldi kúabelgjanna. En það fundust rótarhnýði í tilraunum árið 2023 og var bæði heildaruppskera og próteininnihald meira það ár. Erturnar voru með marktækt mesta uppskeru, bæði árin. Næringarskortur hrjáði bæði repju og ertur í heilsæði þannig að niðurstöður úr þeim tilraunum voru ekki eins og við var að búast. Gaf mesti sáðskammturinn mesta uppskeru í sáðmagnstilrauninni og árið 2022 gaf mesti N-áburðarskammturinn mesta uppskeru, þar sem niturbindingar Rhizobium naut ekki við, en árið 2023 þar sem niturbinding var til staðar var ekki marktækur munur á milli áburðarskammta. Orðið kúabelgir er nýyrði sem var sérstaklega fundið upp til að vekja athygli á þessu verkefni. Kúabelgir er hér notað sem samheiti yfir einærar fóðurbelgjurtir fyrir kýr. Lykilorð: Einærar fóðurbelgjurtir, ertur, hestabaunir, fóðurlúpína, logasmári, fóðurflækja, loðflækja, heilsæði, sáðmagn, N-áburðarskammtar."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/47560"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Búvísindi","Einærar fóðurbelgjurtir","Ertur","Hestabaunir","Fóðurlúpína","Logasmári","Fóðurflækja","Loðflækja","Heilsæði","Sáðmagn","N-áburðarskammtar"],"dc:title":["Kúabelgir Uppskera og fóðurgildi einærra belgjurta fyrir mjólkurkýr","Cow-legumes; yield and nutritional value in annual legumes for dairy cows"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T18:42:25Z"}