Back to results

Agricultural University of Iceland

Náttúruleg leiksvæði, ferli vatns og ofanvatnslausnir á völdum svæðum í Úlfarsárdal

Abstract

dc:description.abstract

Í verkefninu er skoðað hvernig náttúruleg ferli í þéttbýli, eins og vatnsferli, geta verið gerð sýnileg og aðgengileg fyrir börn í gegnum leik og hönnun landslags. Höfundur rannsakaði hvernig sameina má ofanvatnslausnir og leikstaði til að skapa fræðandi og skemmtilega reynslu sem örvar skilning barna á umhverfi sínu. Þar er lögð áhersla á notkun náttúrulegs efniviðar og sköpun rýmis þar sem börn geta upplifað og lært um vatn á fjölbreyttan hátt. Markmiðið með verkefninu er að sýna mikilvægi náttúrulegra ferla með því að þróa hönnun sem er ekki aðeins sýnileg heldur einnig aðgengileg fyrir börnin. Hönnuninni er ætlað að samþætta upplifun um vatnsferli við náttúrulrgar aðstæður, og sérstaklega hvernig hægt er að gera þessi ferli aðlaðandi og skiljanleg fyrir börn. Hluti af undirbúning verkefnisins var að skoða ýmis svæði eins og Stora Holmen í Örebro og Norra Djurgårdsstaden í Stokkhólmi, sem byggja á náttúrulegri og sjálfbærri hönnun. Á þessum svæðum eru blágrænar ofanvatnslausnir notaðar til að draga úr flóðahættu og bæta líffræðilegan fjölbreytileika í þéttbýli. Sem hluta af greiningarvinnu heimsótti höfundur frístundarheimilið Úlfabyggð í Dalskóla til að ræða við börn um ferðir þeirra til og frá skóla og uppáhalds leiksvæði þeirra í hverfinu. Notast var við A3 kort og kortasíðu ja.is til að hjálpa börnunum að kortleggja leiðir sínar og áhugaverða staði. Þátttakendur voru 18 börn úr fyrsta og öðrum bekk, börnin lýstu hvernig þau leika sér og ferðast í hverfinu, sérstaklega um þá staði sem þau finna aðlaðandi og nefndu mörg Leirtjörn. Gögnin sem urðu til voru svo nýtt við gerð viðmiða fyrir hönnun leikstaða. Í hönnunarferli verkefnisins er lögð áhersla á víxlverkun vatns og leiks og nýtingu náttúrulegs umhverfis til að skapa fræðandi og hvetjandi rými fyrir börn, sem styður við og dýpkar skilning og virðingu fyrir náttúrunni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gerður Dýrfjörð 1963-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47524
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47524

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gerður Dýrfjörð 1963-. Náttúruleg leiksvæði, ferli vatns og ofanvatnslausnir á völdum svæðum í Úlfarsárdal. 2024. http://hdl.handle.net/1946/47524