Back to results

Agricultural University of Iceland

Áhrif yfirsáningar í gróin tún á uppskeru og hlutfall sáðgresis

Abstract

dc:description.abstract

Yfirsáning (e. overseeding) getur verið einföld og ódýr leið til þess að auka magn og gæði uppskeru án þess að fara alla leið í endurræktun. Yfirsáning snýst um það að sá fræi ofan á gróinn svörð, ólíkt ísáningu þar sem svörðurinn er opnaður og fræ lagt ofan í hann. Yfirsáning er ekki algeng hér á landi en tíðkast víða erlendis. Mismunandi er hvort tilraunir með yfirsáningu beri árangur í formi uppskeruauka, en reynsla bænda er þó að yfirsáning geti aukið uppskeru takist vel til. Þessi tilraun skoðaði yfirsáningu í tvær spildur á Hvanneyri og Mið-Fossum. Ekki fannst marktækur munur á uppskeru né hlutfalli sáðgresis á milli reita með eða án yfirsáningu á fyrsta ári. Á meðan yfirsáning skilar ekki uppskeruauka er hún ekki arðsöm, en hún þyrfti að skila aukningu sem nemur um 520 kg þe. til þess að standa undir sér. Það hefur sýnt sig að yfirsáning ber oft ekki mælanlegan árangur fyrr en á öðru ári eftir sáningu og því þarf að endurtaka uppskerumælingar á þessum spildum til þess að sjá mögulegan árangur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Pétur Snær Ómarsson 2000-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47509
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47509

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Pétur Snær Ómarsson 2000-. Áhrif yfirsáningar í gróin tún á uppskeru og hlutfall sáðgresis. 2024. http://hdl.handle.net/1946/47509