Agricultural University of Iceland
Áhrif mismunandi verklags sauðfjársæðinga á fanghlutfall áa
Abstract
dc:description.abstractTalið er að ákveðið verklag geti skilað bændum auknum árangri í sæðingum t.d. tímasetning sæðinga, hvort að hrútur er hafður nálægt þeim ám sem á að sæða og hitastig í útihúsum o.s.frv. Sauðfjársæðingar eru áhrifamikill þáttur á kynbætur sauðfjár hér á landi og í núgildandi ræktunarmarkmiðum gegna þær mikilvægu hlutverki m.a. í baráttu gagnvart riðuveiki. Miklar framfarir hafa orðið í gegnum tíðina á verklagi við sæðingar bæði er varðar úrtöku sæðisins úr hrútunum og þegar kemur að sæðingunni sjálfri. Framfarir hafa orðið við meðferð og flutning sæðisins, tæki og tól hafa þróast smátt og smátt og áhugi og þátttaka bænda til þess að notast við sæðingarnar hefur aukist sömuleiðis. Í þessari rannsókn voru kannaðar mismunandi verklags aðferðir sauðfjárbænda við sauðfjársæðingar og hvaða áhrif mismunandi verklag hefur á fanghlutfall áa með því að senda út spurningakönnun til þeirra bænda sem notast við sauðfjársæðingar og bera saman niðurstöður þeirrar könnunar við gagnasafn í Fjárvís. Notast var við gagnasafn úr Fjárvís frá árinu 2023 sem heldur utan um niðurstöður sæðingartímabils ársins 2022. Við úrvinnslu voru borin saman svör bænda við spurningakönnun við fanghlutfallið og kannað var hvort að marktækur munur væri á mismunandi verklagi og hvort það hefði einhver áhrif á árangur sæðinga og fanghlutfallsins. Það reyndist þó ekki vera marktækur munur á mismunandi verklagi og áhrifum þess á fanghlutfall áa samkvæmt þeim gögnum sem notuð voru við þessa rannsókn (p>0,05). Einnig voru könnuð tengsl fanghlutfallsins við kjarnfóðurgjöf yfir fengitímann þar sem kjarnfóðrið á að hjálpa til við að tryggja inntöku allra helstu næringarefna sem ætti að hafa jákvæð áhrif á fanghlutfallið. Ekki reyndist þó vera marktækur munur á fanghlutfalli hjá þeim bændum sem annars vegar gáfu kjarnfóður yfir fengitímann og hjá þeim sem ekki gáfu kjarnfóður (p>0,05). Síðan voru könnuð tengsl fanghlutfallsins milli svæða, með því var verið að kanna áhrif flutninga á sæðinu að einhverjum hluta þar sem tekið var tillit til flutnings með bíl, strætó eða flugi. Munur á fanghlutfalli og flutningsmáta var næstum marktækur og við nánari athugun fannst marktækur munur á milli flutnings með bíl og strætó (p<0,05).
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ómar Ólafsson 1997-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/47507
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/47507