Back to results

Agricultural University of Iceland

Influence of muskox carcasses on soil nutrients and vegetation in a High Arctic ecosystem in northeast Greenland

Abstract

dc:description.abstract

Hræ stórra spendýra geta haft veruleg áhrif á jarðveg og gróður þar sem þau falla til, einkum sökum aukinnar næringarefnaákomu. Slík áhrif eru sérstaklega mikilvæg í næringarsnauðum vistkerfum, s.s. freðmýrum, þar sem aukið framboð næringarefna getur haft langvarandi áhrif. Rannsóknir á þessum áhrifum í slíkum vistkerfum hafa hingað til verið frekar takmarkaðar, og í fæstum tilvikum náð til hræja eldri en fimm ára. Í þessari rannsókn kannaði ég áhrif 16 sauðnautahræja (0 til 43 ára gamalla) á framboð næringarefna í jarðvegi og samsetningu gróðurs á norðaustur Grænlandi. Sérstaklega var litið til þess hvort næringarefnaforði jarðvegs væri breytilegur m.t.t. aldurs hræjanna. Ég kannaði bæði samsetningu gróðurs og næringarinnihald jarðvegs á þeim stöðum sem hræin höfðu fallið til á, og eins á samanburðarsvæðum tveimur metrum frá hræjunum. Af þeim tólf næringarefnum sem voru greind, voru sex umtalsvert hærri á svæðunum sem hræin voru á (N, K, P, Mn, Zn og S). Einnig leiddi rannsóknin í ljós að samsetning gróðurs var töluvert öðruvísi við hræin samanborið við samanburðarsvæðin, en stigull var þar á milli. Grös voru ríkjandi á þeim svæðum sem hræin voru á, en magn flétta jókst aftur á móti með aukinni fjarlægð frá hræjunum. Athyglisvert var að gróður var fjölbreyttari á samanburðarsvæðunum en á svæðunum sem hræin voru á, sem gefur til kynna að líklega hafi ríkjandi staða grasa leitt af sér einsleiti. Í samræmi við það var þekja sígrænna runna meiri á samanburðarsvæðunum en við hræin. Hins vegar fannst enginn marktækur munur á þekju blaðfellandi runna og mosa milli reitanna og aldur hræja virtist ekki hafa áhrif á framboð næringarefna í jarðvegi, sem gefur til kynna að næringarefnin haldist í jarðveginum árum eða jafnvel áratugum saman. Rannsókn þessi sýnir þannig fram á að hræ stórra spendýra hafa afgerandi og langvarandi áhrif á bæði næringarefnaforða jarðvegs og samsetningu gróðurs á norðurslóðum og eykur á þann hátt á breytileika á landslagsvísu á næringarsnauðum svæðum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Britta Steger 1997-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 14

Rights

Language dc:language.iso
en

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46246
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46246

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Britta Steger 1997-. Influence of muskox carcasses on soil nutrients and vegetation in a High Arctic ecosystem in northeast Greenland. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46246