Abstract
dc:description.abstractHöfuðborgarsvæðið hefur þróast mikið frá því á 20. öld til dagsins í dag samhliða fjölgun íbúa. Í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins eru vaxtarmörk sem afmarka þéttbýli frá dreifbýli. Hér er einn valmöguleiki til að koma til móts við íbúaaukninguna innan vaxtarmarka höfuðborgarsvæðisins. Áður en greining hófst á golfvöllum voru settar fram forsendur fyrir hlutlaust mat og faglega niðurstöðu. Í þeim fólst umhverfi golfvallanna, hvort þeir væru hluti af stærra útivistarsvæði, eða byggð farin að þrengja að þeim. Hvort þeir hömluðu tengingum og hvort breytt landnotkun gæti styrkt aðliggjandi hverfi. Í þessu riti verður saga golfíþróttarinnar rakin þar sem miklar breytingar hafa átt sér stað og nokkrir golfvellir hafa vikið fyrir byggð. Aðal- og deiliskipulög voru skoðuð fyrir núverandi golfvelli og þar kom í ljós að nokkrar breytingar munu verða á fleiri golfvöllum í framtíðinni. Golfvellir spanna stór svæði í höfuðborginni og eru flestir í úthverfum borgarinnar. Það var því lögð áhersla á að skoða hver væri besti kostur við að þróa og efla úthverfin. Áhersla var lögð á að kanna hvernig höfuðborgin hefur þróast og hvernig hægt sé að stýra áframhaldandi þróun í rétta átt. Ein gagnrýnin á fyrsta Aðalskipulag Reykjavíkur 1962-1983 var á aðskilnað íbúða- og atvinnuhverfa. Í stefnu nútímans er lögð áhersla á blandaða byggð til að stytta vegalengdir fólks og bæta tengingar. Niðurstaðan var sú að greina þyrfti Korpúlfsstaðavöll nánar fyrir breytta landnotkun. Farið var í vettvangsferðir og gerð íbúakönnun og Svót greining. Að lokum var lögð fram hönnunartillaga sem var unnin út frá greiningu svæðis og fræðilegri samantekt.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Valdís Vilmarsdóttir 1995-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/46242
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/46242