Back to results

Agricultural University of Iceland

Degli á Íslandi. Möguleikar og áskoranir við ræktun deglis í skógrækt á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Degli (Pseudotsuga menziesii) er ein mikilvægasta trjátegundin í N-amerískri og evrópskri skógrækt vegna mikils vaxtarþróttar og verðmæts viðar. Ræktun deglis hefur verið mun minni og árangurslakari í Skandinavíu en í V- og Mið-Evrópu en innlandskvæmum (Pseudotsuga menziesii var. glauca) hefur vegnað betur en strandkvæmum (Pseudotsuga menziesii var. menziesii) á norðlægum slóðum. Á Íslandi hefur degli sáralítið verið ræktað en fáeinar degligróðursetningar finnast hér á landi. Í rannsókninni var leitast við að fá skýrari mynd af vænleika degliræktar í skógrækt á Íslandi. Úttektir voru gerðar á tveimur fyrirliggjandi kvæmatilraunum og mat lagt á lifun, vöxt og þrif trjánna, frostþol 17 deglikvæma undir lok september var prófað við stýrðar aðstæður og vaxtarmælingar á eldri degliskógum og -trjám voru gerðar. Fjallakvæmi frá Bresku Kólumbíu sýndu um 90% lifun í 20 ára kvæmatilraun og voru mun álitlegri en kvæmi úr lítilli hæð sem þrifust illa. Frægarðaefni frá Bresku Kólumbíu sýndu góðan árangur í lifun og vexti í miklu skógarskjóli en voru ekki betri en norðlægt kvæmi frá Bresku Kólumbíu. Háfjallakvæmi frá Nýju-Mexíkó vegnaði talsvert verr. Mjög gott skógarskjól var forsenda góðs árangurs í tilraununum. Á skjólminni stöðum var árangur verri og aldauði var á fjórum tilraunastöðum í opnu landi. Undir skógarskermi eða í smáum skógarrjóðrum má vænta prýðilegrar lifunar og ágætum vexti en gott vaxtarlag er ótryggt. Ásættanleg lifun deglis í opnu landi í bröttum hlíðum í inndölum er ekki útilokuð. Frostþol 17 deglikvæma undir lok september var mikið en kvæmamunur var lítill. Prófa þarf frostþol um miðjan september til að öðlast betri mynd af hve snemma frostþol byggist upp meðal deglikvæma á Íslandi. Vaxtarþróttur deglis á Íslandi hefur verið ágætur. Tré í elsta deglilundi landsins eru á meðal stærstu trjáa Íslands og einstaka tré hafa sýnt einmuna vaxtarhraða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kári Freyr Lefever 1986-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 17

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45824
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45824

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kári Freyr Lefever 1986-. Degli á Íslandi. Möguleikar og áskoranir við ræktun deglis í skógrækt á Íslandi. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45824