Back to results

Agricultural University of Iceland

Umhverfi dvalarheimila hvati til lífsgæða eða hlutlaus umgjörð

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangefnið í þessu verkefni er mikilvægi útisvæða við dvalarheimili og hvaða áhrif þau hafa á heilsu og lífsgæði aldraða. Markmiðið er að svara spurningunni: Hvernig er aðgengi og aðstaða aldraða á útisvæðum við dvalar- og hjúkrunarheimili. Til þess að nálgast viðfangsefnið var gerður gátlisti sem var að mestu unnin upp úr bókinni Aðgengi fyrir alla. Leitast var eftir að svara spurningum eins og hvaða þættir einkenna gott útisvæði, getur aðgengi, skipulag, byggingartími, rekstarform, framtíðarskipulag og landfræðileg staðsetning haft áhrif á notkun svæðanna. Þau heimili sem valin voru til skoðunar eru, Dvalarheimilið Höfði Akranesi, Dvalarheimili aldraðra Borgarnesi, Grund í Reykjavík og Skógarbær, Reykjavík. Við valið var reynt að fá fram sem mesta breidd bæði hvað varðar rekstur, stærð og staðsetningu. Farið var í nokkrar vettvangsferðir á valin svæði, teknar ljósmyndir, gátlisti fylltur út og rætt við forsvarsmenn og heimilisfólk. Það má segja eftir úttektina að aðgengi og aðstaða er misgóð. Á þremur stöðum var aðgengi almennt í lagi en á einum staðnum er það mjög lélegt. Við þau þrjú heimili sem voru í lagi er ljóst að aðgengi og skipulag hefur áhrif á notkun svæðanna og heimilið sem kom verst út er með lélegasta aðgengið, þar er útisvæðið minnst notað. Ekki er sýnilegt að þættir eins og byggingartími, rekstrarform og staðsetning heimilanna hafi afgerandi áhrif á niðurstöður. Besta dæmið um þetta er Dvalarheimilið Höfði á Akranesi sem er næst elsta dvalarheimilið og með besta aðgengið. Rekstarform og staðsetning virðist ekki hafa áhrif þegar gæði útsvæða eru skoðuð. Framtíðarskipulag þeirra svæða sem skoðuð voru í þessu verkefni sýndu að á þremur af þessum fjórum stöðum er verið að stækka dvalarheimilin og flest allar viðbyggingarnar eru áætlaðar fjórar til sjö hæðir það er hreinlega að vera að byggja inn á vel hönnuð útisvæði og með þessum stækkunum er í öllum tilfellum verið að skerða dvalarsvæðin, minnka útsýni, auka skuggamyndun og rjúfa tengingar við svæðið Mjög lítið hefur verið skoðuð notkun og aðgengi aldraðra að útisvæðum og áhrif skipulags. Það er mikilvægt fyrir framtíðina að efla rannsóknir á því hvernig aðgengi og skipulagi er háttað við dvalarheimili landsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Marta María Jónsdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4572
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4572

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Marta María Jónsdóttir 1976-. Umhverfi dvalarheimila hvati til lífsgæða eða hlutlaus umgjörð. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4572