Back to results

Agricultural University of Iceland

Útivistasvæði í hjarta miðborgar: Hljómskálagarðurinn og friðlandið í Vatnsmýrinni

Abstract

dc:description.abstract

Þétting byggðar í miðbæ Reykjavíkur og fyrirhuguð byggð í Vatnsmýrinni mun leiða til aukins fólksfjölda. Stækkun og sameining útivistasvæðanna Hljómskálagarðs og friðlandsins í Vatnsmýrinni er svar við þeirri fjölgun og mun gefa almenningi færi á að komast úr borgarumhverfinu í náttúrlegt og fjölbreytt útivistasvæði með margskonar afþreyingu. Ritgerð þessi er b.s. lokaverkefni í umhverfisskipulagi við umhverfisdeild Landbúnaðarháskóla Íslands. Ritgerðin fjallar um hönnunarverkefni sem hefur það markmið að skipuleggja fjölbreytt og aðgengilegt útivistasvæði þar sem spilast saman saga, menning og sérstæð náttúra í hönnun svæðisins. Til þess voru gerðar greiningar á hönnunarsvæðinu og niðurstöður þeirra notaðar sem forsendur við hönnun útivistasvæðisins. Niðurstaðan er hönnunarteikning af útivistasvæði með áherslu á sögulega og náttúrufarslega tengingu. Hljómskálagarðurinn er endurreistur frá fyrra horfi í nýklassískum stíl og friðlandið í Vatnsmýrinni varðveitt, endurheimt að hluta og það skipulagt með friðun fugla að leiðarljósi. Kennileitum er gert hátt undir höfði og með sjónlínuásum er tryggt að þau fái notið síns innan garðsins. Hljómskálagarðurinn er tengdur við útivistasvæðið með göngustígum og vatnrásum sem miða að því að halda sjónlínum opnum, tengja svæðin saman og eru jafnt fram vísanir í tjarnir, síki og votlendi sem eru einkennandi fyrir svæðið. Útivistasvæðið skiptist gróflega í þrjú svæði sem öll hafa ólíkt yfirbragð og notkun. Yfir Hljómskálagarði ríkir skrúðgarðayfirbragð og þar er menning og saga við lýði. Friðlandið í Vatnsmýrinni er náttúrulegt friðland fugla og umhverfis friðlandið eru fræðslustígar sem tengjast Nýja-Hljómskálagarði sem er þriðja svæðið. Þar er skjólsælt og gróskumikið og þar mun öll fjölskyldan finna eitthvað fyrir sig á leiksvæðum, boltavöllum, veitingasvæðum, púttvelli, æfingasvæði, þemagörðum og öðru skemmtilegu. Semsagt fjölbreytt útivistasvæði sem samþættir náttúrulegt friðlandið inní hið líflega og gróðursæla útivistasvæði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Lilja Jónsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4542
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4542

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Lilja Jónsdóttir 1983-. Útivistasvæði í hjarta miðborgar: Hljómskálagarðurinn og friðlandið í Vatnsmýrinni. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4542