Back to results

Agricultural University of Iceland

Rauðhólafólkvangur, saga, verndun og nýting

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.S. prófs frá umhverfisskipulagsbraut við Landbúnaðarháskóla Íslands. Markmið verkefnisins er að fjalla um sögu, verndun og nýtingu Rauðhólafólkvangs. Auk þess að koma með tillögu að aðkomu að Rauðhólasvæðinu þar sem verndargildi og notagildi fara saman. Með ritgerðinni er leitast við að svara því hvernig hægt er að nýta samspil náttúruverndar, nýtingar, sögu og staðhátta á Rauðhólasvæðinu til þess að styrkja það sem svæðið hefur upp á að bjóða, við gerð aðkomu . Unnar voru sjónrænar greiningar/ rýmisgreiningar. Við vinnu á greiningum var farið í vettvangsferðir, teknar ljósmyndir og stuðst við loftmyndir. Auk þess nýttist persónuleg þekking á svæðinu vel við greiningar. Rauðhólafólkvangur er hluti af stærsta útivistarsvæði höfuðborgarinnar og er í norðurjaðri Heiðmerkur. Segja má því að Rauðhólasvæðið sé anddyri Heiðmerkur. Helstu niðurstöður umfjöllunar og greining eru þær að þrátt fyrir það rask sem að unnið var á Rauðhólunum um miðja 20.öld er svæðið fjölbreytt og hefur mikið upplifunar- og útivistargildi. Með aukinni og fjölbreyttari útivistariðkun fólks og vegna nálægðar svæðisins við þéttbýlið er mikilvægt að koma á ákveðinni stjórnun umferðar innan þess til þess að verndargildi og notagildi Rauðhólafólkvangs fari sem best saman. Með aðgengilegri og bættri aðkomu að Rauðhólunum er ekki einungis verið að hlífa því fyrir átroðningi, heldur er akandi, gangandi og ríðandi umferð stýrt svo að náttúruminjar, gróðurfar og gestir fái best notið sín. Með bættri aðkomu eru njótendur upplýstari um staðhætti og sögu sem eykur útivistargildi og öryggi njótenda við útivistariðkun. Með fræðslu er hægt að auka virðingu gesta fyrir svæðinu, sem í kjölfarið getur leitt til betri umgengni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lena Rut Kristjánsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4541
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4541

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lena Rut Kristjánsdóttir 1985-. Rauðhólafólkvangur, saga, verndun og nýting. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4541