Back to results

Agricultural University of Iceland

Akraneshöfn: hönnunartillaga

Abstract

dc:description.abstract

Lokaverkefni þetta til B.S. prófs frá umhverfisskipulagsbraut við Landbúnaðarháskóla Íslands fjallar um höfnina á Akranesi. Meginmarkmið verkefnisins er tvíþætt: 1. Greina þróun og stöðu hafnarinnar. 2. Koma fram með hönnunartillögu þar sem útgerð, mannlíf, ferðamennska, einkenni hafnarinnar, sterkari tengsl við íbúa, sjálfbær þróun og endurnýting eru höfð að leiðarljósi. Höfnin er skoðuð útfrá því hver framtíð hennar sé, hver þróunin hefur verið, hver staða hennar er í dag og hvaða hættur eru yfirvofandi í framtíðarþróun hennar. Í því samhengi er stefna Akraneskaupstaðar skoðuð, farið er yfir hafnarsögu, þróun útgerðar og nýtingu hafnarinnar. Til þess að greina gerð hafnarinnar og þær hættur sem gætu ógnað tilveru hennar útfrá fræðilegum grunni er stuðst við bókina Havnemiljø i Norden sem er samsafn greina um norrænar hafnir sem Norræna ráðherranefndin lét taka saman og gefa út. Greiningar eru gerðar á umhverfi hafnarinnar, aðgengi, nýtingu, mannvirkjum, ásýnd, áhrifum náttúruafla og tengingum við aðliggjandi svæði. Greiningarnar eru nýttar í hönnunar tillöguna til þess að ná settum markmiðum. Niðurstöður eru þær að hægt er að hanna hafnarumhverfi sem hefur aðdráttarafli fyrir fólk og ferðamenn án þess að hið eiginlega hafnarlíf hverfi, höfnin haldi einkennum sínum með endurnýtingu mannvirkja og styrkja megin tengsl við aðliggjandi svæði og íbúa með auknu aðgengi. Hafnir hafa mikið gildi í sjávarplássum og með réttri skipulagningu er hægt að auka þau verðmæti sem hafnarsvæðið hefur upp á að bjóða, gera það eftirsóknarvert svæði fyrir alla.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Drífa Gústafsdóttir 1970-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4535
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4535

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Drífa Gústafsdóttir 1970-. Akraneshöfn: hönnunartillaga. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4535