Back to results

Agricultural University of Iceland

Erfiðir staðir – Andi Flateyrar. Hönnun á minningasvæði

Abstract

dc:description.abstract

Hver staður er einstakur og hefur sína sál eða anda sem greinir hann frá öðrum. Hugtakið staðarandi eða Genius loci er notað yfir þau sérkenni sem einkenna hvern stað, aðgreinir hann frá öðrum og vísar til þeirra tilfinninga eða áhrifa sem fólk upplifir á staðnum. Með verkefninu verður varpað ljósi á hvað ber að hafa í huga við hönnun opinna svæða í samfélagi sem hefur þurft að upplifa mannskæðar náttúruhamfarir. Flateyri er þar tekin fyrir sem dæmi og unnin hönnunartillaga með það markmið að útfæra jákvæð svæði á erfiðum stað sem varðveitir minningar svæðisins. Í verkefninu er leitast við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hvernig er hægt að útfæra jákvæð svæði á erfiðum stað? Hvernig getur hönnun opins svæðis dregið fram jákvæða upplifun og varðveitt minningar á uppbyggilegan hátt á erfiðum stað? Niðurstöður rannsóknaspurningana sýndu fram á að skapa þurfi aðlaðandi bæjarrými sem hvetja gesti til þess að staldra við og njóta umhverfisins. Sé unnið að hönnun með byggðarsögu og minningar staðarins til hliðsjónar er hægt að stuðla að jákvæðri og áhugaverðri upplifun fyrir íbúa og ferðamenn svæðisins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þorkatla Inga Karlsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44838
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44838

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þorkatla Inga Karlsdóttir 1985-. Erfiðir staðir – Andi Flateyrar. Hönnun á minningasvæði. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44838