Abstract
dc:description.abstractÍsland er eldfjalleyja þar sem náttúra og lífríki endurspegla hnattstöðu landsins. Veðurfar hefur meðal annars mikil áhrif á birtingarmyndir landslagsins. Við lifum við skammdegi yfir vetrartímann og upplifun á umhverfinu getur verið stórfengleg, fyrir tilstilli birtu, bæði yfir sumar- og vetrartímann. Bláa stundin, löngu björtu sumarnæturnar, gullni himininn eru meðal annars einkenni birtingarmyndir landslags á Íslandi. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að kanna hvernig ljós hefur áhrif á skynjun okkar í mismunandi landslagi, í náttúrulegu landslagi og borgarlandslagi. Uppbygging ritgerðar er samblanda af fræðilegri samantekt og ýmis verkefni skoðuð víðsvegar úr heiminum þar sem ljós er notað sem aðdráttarafl í hönnun í landslagi. Í borgarlandslagi er lýsing stór og mikilvægur þáttur meðal annars út frá öryggi, læsileika umhverfisins og fjölbreytileika. Raflýsing getur þó haft áhrif á myrkurgæði í formi ljósmengunar. Ljós er einnig skoðað út frá upplifun fólks af umhverfinu. Stuðst er við aðferðafræði Bell til að fá skilning hvaða þættir hafa áhrif á upplifun okkar af umhverfinu. Listsköpun er einnig skoðuð og varpað ljósi á hvernig listamenn hafa notað ljós sem innblástur í verkum sínum. Með tilkomu Evrópska landslagssáttmálans var landslag skilgreint í fyrsta sinn í víðu samhengi og var hann skoðaður ásamt staðaranda sem vísar til þeirra sérstöku eiginleika og gæði sem einn staður hefur umfram annan. Það má með sanni segja að ljós og birtuaðstæður eru ómetanlegur fjársjóður fyrir okkur öll og upplifun og heilbrigði umhverfisins er því mikilvæg.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- María Ólöf Sigurðardóttir 1977-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 9Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/44820
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/44820