Back to results

Agricultural University of Iceland

Innleiðing blágrænna ofanvatnslausna í nýrri íbúðabyggð

Abstract

dc:description.abstract

Loftslagsbreytingar og minni líffræðilegur fjölbreytileiki er vandi sem allur heimurinn stendur frammi fyrir. Hlýnun jarðar, náttúruhamfarir og flóð innan þéttbýlis eru dæmi um áskoranir sem aukist hafa verulega á undanförnum árum. Náttúrumiðaðar lausnir eru ein leið til að takast á við þessi vandamál. Þær eru aðgerðir sem vernda, stjórna og endurheimta náttúruleg og breytt vistkerfi á sjálfbæran hátt. Ávinningurinn er margvíslegur og á ekki aðeins við um líffræðilegan fjölbreytileika og loftslagsmál, heldur styrkja náttúrumiðaðar lausnir efnahags- og heilbrigðismál og stuðla að velferð manna. Ein gerð af náttúrumiðuðum lausnum eru blágrænar ofanvatnslausnir. Þær takast á við áskoranir sem snúa að ofanvatni (regnvatni) innan þéttbýlis. Þétting byggðar hefur leitt til þess að meira er um ógegndræp yfirborð sem geta valdið ofanflóðum og ofsaálagi á fráveitukerfi. Blágrænar ofanvatnslausnir meðhöndla ofanvatn á náttúrulegan hátt og geta dregið úr álagi á fráveitukerfum, stuðlað að lýðheilsu íbúa og aukið líffræðilegan fjölbreytileika. Um allan heim hefur innleiðing blágrænna ofanvatnslausna farið vaxandi og árangurinn verið góður. Þær hafa verið innleiddar í örfáum bæjum á Íslandi en aukning á þeim er nauðsynleg þar sem stefna um að þétta byggð er allsráðandi. Í þessu verkefni er fjallað um náttúrumiðaðar- og blágrænar lausnir, skoðuð eru erlend fordæmi og hvernig best er að innleiða blágrænar ofanvatnslausnir í nýrri íbúðabyggð. Gerð er greining á Skógarhverfi á Akranesi, sem er athugunarsvæði þessa verkefnis, til að koma auga á sérkenni svæðisins og í kjölfarið eru hönnunarforsendur lagðar fram. Hönnunartillaga að innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna í hverfinu er sett fram myndrænan hátt, með farsæla innleiðingu að markmiði. Niðurstöður verkefnisins sýna hvernig hægt er að innleiða blágrænar ofanvatnslausnir í Skógarhverfi og í leiðinni hvernig þær geta aukið gæði umhverfisins, aukið líffræðilegan fjölbreytileika, stuðlað að bættri lýðheilsu íbúa og dregið úr álagi á fráveitukerfi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Berta Heimisdóttir 2000-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44810
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44810

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Berta Heimisdóttir 2000-. Innleiðing blágrænna ofanvatnslausna í nýrri íbúðabyggð. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44810