Back to results

Agricultural University of Iceland

Kornþurrkun í Eyjafirði

Abstract

dc:description.abstract

Áhugi á eflingu kornræktar hefur aukist að undanförnu, bæði meðal bænda og ráðamanna. Framleiðsla kornvara er takmörkuð á Íslandi þrátt fyrir að skilyrði til framleiðslunnar eru til staðar. Verkunaraðferð er hluti af kornræktinni en stór hluti af korni á Íslandi í dag er votverkaður. Votverkun takmarkar hins vegar nýtingarmöguleika kornsins en til að nýta korn til kjarnfóður- eða matvælaframleiðslu þarf að þurrka það. Kornræktendur í Eyjafirði hafa áhuga á því að koma sér upp kornþurrkstöð og hugmynd þessa verkefnis kom frá þeim. Verkefnið er tilviksrannsókn (e. case study). Markmið verkefnisins er að kanna fýsileika og hagkvæmni kornþurrkstöðvar í Eyjafirði. Kornræktendum í Eyjafirði hefur þó einnig verið boðið að þurrka korn sitt í graskögglaverksmiðju við Húsavík. Viðbót við verkefnið var því að meta flutningskostnað bæði fyrir þurrkstöð í Eyjafirði og Þingeyjarsveit og bera saman. Flutningskostnaður við að flytja korn til og frá Húsavíkur voru um 5,9 kr/kg samanborið við 2,3 kr/kg ef kornið var flutt að Syðra-Laugalandi í Eyjafirði. Þó er hagkvæmara að flytja kornið til Húsavíkur heldur en að þurrka það í 1000 tonna stöð á Syðra-Laugalandi vegna lægri þurrkkostnaðar í graskögglaverksmiðjunni. Hins vegar er 2500 tonna stöð í Eyjafirði hagkvæmari heldur en að flytja kornið til Húsavíkur en miðað við núverandi framleiðslu væri ekki hægt að fullnýta þá stöð. Rannsóknir hafa sýnt að þurrkun með heitu vatni er talsvert ódýrari heldur en þurrkun með öðrum varmaorkugjöfum. Heita vatnskostnaður var metin um 0,9 kr/kg og rafmagnskostnaður um 0,18 kr/kg.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Oddleifur Eiríksson 2001-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44788
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44788

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Oddleifur Eiríksson 2001-. Kornþurrkun í Eyjafirði. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44788