Agricultural University of Iceland
Mannlíf Grasagarðsins í Reykjavík. Notkun og viðhorf gesta
Abstract
dc:description.abstractGrasagarðurinn í Reykjavík gegnir því tvíþætta hlutverki að vera grænt svæði í borgarumhverfi okkar og einnig plöntusafn undir berum himni. Garðurinn er opinn allan ársins hring. Markmið verkefnisins er að kanna viðhorf og notkun gesta hans. Til þess voru settar fram spurningar með gæðamatsflokkun Patrik Grahn og athafnaflokkun Jan Gehl til hliðsjónar. Spurningarkönnun var framkvæmd á tveimur ólíkum tímabilum, annars vegar yfir vetrartímann og hins vegar yfir sumartímann. Með könnuninni var ætlunin að finna út hvaða ástæður lægju að baki heimsóknum fólks í Grasagarðinn, hvernig fólk notaði hann og viðhorfi gesta til hans. Grasagarðurinn er fjölfarinn, bæði yfir vetrar-og sumartímann. Könnunin leiddi í ljós að gestir garðsins nota hann í ýmsum tilgangi og þá helst til að komast í náttúru, hreyfa sig, fræðast og fyrir sálræna þætti eins og hugarró. Fleiri konur en karlar heimsækja garðinn og gestir koma gjarnan í garðinn í litlum hópum. Gestir dvelja lengur í garðinum yfir sumartímann en vetrartímann og koma lengra að.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sóley Ósk Sigurgeirsdóttir 1976-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 12Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/44635
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/44635