Agricultural University of Iceland
Loftslags- og umhverfisvænt skipulag í dreifbýli Flokkun lands með hliðsjón af bindingu kolefnis, losun gróðurhúsalofttegunda, líffræðilegri fjölbreytni og landslagi
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að kanna hvaða gögn eru aðgengileg um ástand lands með tilliti til losunar gróðurhúsalofttegunda, bindingar kolefnis, líffræðilegrar fjölbreytni og landslags. Einnig að kanna hvernig hægt er að nýta þau gögn sem eru fyrirliggjandi þegar taka skal ákvarðanir í skipulagsmálum með hliðsjón af kolefnisbindingu, losun gróðurhúsalofttegunda, líffræðilegri fjölbreytni og landslagi. Rannsóknin náði yfir landsvæði sem áður tilheyrði Kirkjubæjarhreppi utan þess lands sem nú telst til þjóðlendu, alls um 5100 hektara á Suðausturlandi. Svæðið var valið vegna fjölbreytileika þess og þekkingar höfundar á svæðinu. Leitað var upplýsinga í stafrænum gagnagrunnum, kortagögnum, rituðum heimildum og rannsóknum, auk þess sem viðtöl voru tekin við staðkunnugt fólk og starfsmenn stofnana sem málið varðar. Stafræn gögn voru sett í ArcGIS forrit þar sem þau voru borin saman innbyrðis og við ritaðar og munnlegar heimildir. Frumniðurstöður vinnunnar voru bornar undir staðkunnugt fólk til að bæta gögnin og gera kortlagninguna enn nákvæmari. Þegar endanleg kortlagning lá fyrir var gerð tillaga að því hvernig hægt er að nýta slíka kortlagningu sem grunnupplýsingar við ákvarðanatöku um landnotkun í aðalskipulagi. Niðurstaða rannsóknarinnar er að mikið hefur verið gefið út af gögnum síðustu ár sem nýtast við slíka greiningarvinnu. Nákvæmni gagnanna er mismunandi en sífellt er verið að bæta gæði gagnagrunna og gefa út ný gögn. Með því að yfirfara gögnin með staðkunnugum einstaklingum var hægt að auka gæði kortlagningarinnar með tilliti til kolefnisbúskapar lands út frá ástandi vistkerfa og gróðurþekju. Einnig var hægt að kortleggja land gróflega með hliðsjón af líffræðilegri fjölbreytni en þar nýttist þekking heimamanna lítið. Erfitt reyndist að kortleggja svæðið með hliðsjón af landslagi þar sem flokkun landslags innan rannsóknarsvæðisins er skammt á veg komin. Rannsóknarsvæðið var kortlagt með tilliti til ofangreindra þátta og lögð fram tillaga að stefnumörkun um landnotkun hvers landnotkunarflokks. Markmiðið með tillögum til stefnumörkunar er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, auka bindingu kolefnis, viðhalda eða auka líffræðilega fjölbreytni og vernda ásýnd landslags.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóna Björk Jónsdóttir 1965-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 17Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/44452
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/44452